Fréttir

Oddvitasætið: Boðar nýja forgangsröðun
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 12:02

Oddvitasætið: Boðar nýja forgangsröðun

Sveitarfélagið Vogar stendur á krossgötum. Þótt íbúum fjölgi hratt telur Gunnar J. Helgason, oddviti A-listans, að bærinn hafi vanrækt grunninn: skólana, leikskólana og gatnakerfið. Að hans mati hefur of mikil áhersla á lágar tölur í bókhaldi bitnað á þjónustu við íbúana, sem nú finna fyrir plássleysi og uppsafnaðri viðhaldsþörf.

Hvað telur þú vera stærsta kosningamálið í Sveitarfélaginu Vogum og hvers vegna?

Aðalbros
Aðalbros

„Við hjá A-listanum teljum að stærsta kosningamálið sé innviðaskuld. Þörf er á að stækka grunnskólann og einnig er þörf á stækkun leikskóla þar sem það eru 12 börn á biðlista eftir því að komast á leikskóla. Viðhaldsþörfin er orðin gríðarlega mikil á gatnakerfi og fasteignum bæjarins en auk þess fyrrnefnda eru það íþróttamiðstöð og sundlaug. Þetta eru þeir hlutir sem hafa verið vanræktir af núverandi bæjarstjórn.“

Ef þú mættir aðeins nefna eitt mál sem þið mynduð keyra í gegn á fyrstu 100 dögunum – hvað er það og hvernig munu íbúarnir finna fyrir því?

„Við hjá A-listanum myndum leggja fyrst áherslu á bráðabirgðalausnir hvað varðar leikskólapláss. Fyrir unga foreldra er aðgengi að leikskóla lykilforsenda þess að hægt sé að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku, og þegar slíkt aðgengi er ótryggt eða ófullnægjandi verður sveitarfélagið síður raunhæfur kostur til búsetu.“

Hvað er það sem skilur ykkar framboð skýrast frá hinum flokkunum í sveitarfélaginu í þessum kosningum?

„A-listinn er nýtt framboð með áherslu á samfélagslega hugsun. Við leggjum áherslu á virkni íbúanna og að ákvarðanir séu teknar í nánu samráði við þá. Jafnframt leggjum við áherslu á að stjórnsýslan sé gagnsæ. Unga fólkið er okkur einnig ofarlega í huga. Þess vegna höfum við á okkar stefnuskrá að koma upp menningarsmiðju fyrir ungt fólk þar sem hver og einn getur fundið sér farveg til sköpunar og fræðslu eða sinnt áhugamálum sínum.“

Vogar er sveitarfélag í örum vexti og íbúum fjölgar hratt; hvernig ætlið þið að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgunina án þess að skuldsetja bæinn um of?

„Innviðir hafa ekki haldist í takt við hraða íbúafjölgunar. Áherslan á að halda fjárhagslegri skuld í skefjum hefur leitt til þess að skuldin hefur færst yfir í uppsafnaða innviðaskuld. Við verðum að vera með skýra forgangsröðun og framtíðarsýn. Með því að nýta tímabundnar lausnir þar sem við á, dreifa framkvæmdum yfir lengri tíma og tryggja hagkvæma hönnun má draga úr fjárhagslegu álagi til skemmri tíma.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar