Reykjanesbærinn okkar
Saman höfum við gengið í gegnum margt. Bærinn hefur vaxið hratt á stuttum tíma sem hefur verið gleðilegt en falið í sér áskoranir samhliða. Við höfum þurft að bregðast fljótt við með aukinni þjónustu og innviðum.
Saga kjörtímabilsins
Á kjörtímabilinu höfum við meðal annars framkvæmt eftirfarandi verkefni:
- Byggt var hjúkrunarheimili með 80 ný pláss
- Bókasafnið var stækkað í menningarhúsinu Hljómahöll
- Við byggðum Stapaskóla í Innri Njarðvíkurhverfi ásamt hverfisbókasafni og keppnissundlaug í fullri stærð
- Við byggðum íþróttahúsið í Stapaskóla, Icemar höllina, og stórefldum þátttöku barna í hverfinu í körfubolta
- Stofnuðum þrjár nýjar tómstundamiðstöðvar í hverfunum
- Fimleikadeild Keflavíkur fékk aðstöðu í Keili á Ásbrú sem eflir hverfið
- Endurbætur eru hafnar við knattspyrnuvelli Keflavíkur og Njarðvíkur
- Nýtt gervigras var sett í Reykjaneshöllina
- Við stækkuðum leikskólann Holt og byggðum leikskólana Drekadal, Asparlaut og Tjarnarlund, alls 301 ný pláss.
- Endurbætur við Holtaskóla og Myllubakkaskóla halda áfram en bætt hefur verið fjármagni í verkefnin til að ljúka þeim fyrr
- Uppbygging verslunar og þjónustu á Fitjatorgi með nýrri Byko verslun, ein stærsta Krónu verslun landsins og stærsta Gæludýr.is verslunin
- Fyrsta hringtorgið er komið á Njarðarbraut og hringtorgið við Bergás fer af stað í sumar.
- Skemmtiferðaskip eru byrjuð að koma í Keflavíkurhöfn og munu efla tekjur í bæinn
Áhersla Samfylkingar
Verkefnin sem við í Samfylkingunni leggjum áherslu á næsta kjörtímabili eru:
- Við munum opna velferðarhús fyrir börn með langvarandi stuðningsþarfir
- Strætó fyrir börn og ungmenni verður gjaldfrjáls
- Við ætlum að lengja opnunartíma í sundlaugum, sérstaklega um helgar
- Líflegur útimiðbær verður reistur við Duus reit til að bjóða upp á fleiri viðburði
- Við munum þróa reitinn við Svarta pakkhúsið í menningartengda starfsemi
- Við byggjum Stapaleikskóla og síðar nýjan Garðasel
- Fleiri tómstundamiðstöðvar fara í skólahverfin og frístundastyrkir verða hækkaðir úr 50 þúsund í 70 þúsund að lágmarki
Staðreyndirnar
Fyrir kosningar heyra íbúar rökfærslur um ýmis mál en vert er að nefna nokkur atriði sérstaklega.
Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar er góð. Ársreikningar sem eru unnir af endurskoðendum sanna það. Gjöld bæjarins hafa hækkað, en bærinn er í miklum vexti og íbúar kalla eftir aukinni þjónustu. Við náum því markmiði að tekjur eru hærri en gjöldin, þrátt fyrir að lífeyrisskuldbindingar og kjarasamningar hækka umfram áætlun ásamt gjöldum sem fylgdu uppbyggingu hjúkrunarheimilisins sem við reistum fyrir hönd ríkisins. Engu að síður náðum við samt að skila 440 milljónum í afgang sem verður að teljast frábær árangur fyrir sveitarfélag í slíkum vexti.
Skuldir hafa aukist enda miklar framkvæmdir í bænum. Undanfarin ár höfum við framkvæmt fyrir 23 milljarða en aðeins tekið lán fyrir sex milljarða. Lánin fóru í að hraða framkvæmdum í Myllubakka- og Holtaskóla og byggja upp leikskólana Asparlaut og Drekadal. Það var skynsamleg fjármögnun. Þegar rýnt er í skuldir er best að horfa til skuldahlutfalls en hlutfallið má vera að hámarki 150% en við erum 136%.
Kæru íbúar. Saman getum við gert svo margt og við erum á góðri vegferð. Samfylkingin hefur staðið vaktina fyrir ykkur undanfarin áratug. Sá árangur sést í ábyrgum fjármálum og í uppbyggingu bæjarins. Verkefnið hefur ekki alltaf verið einfalt enda höfum við tekist á við áskoranir líkt og þegar við vorum á barmi gjaldþrots, mikið atvinnuleysi, alheimsfaraldur og náttúruhamfarir. Þrátt fyrir það erum við með öflugt sveitarfélag með góðar framtíðarhorfur. Við erum með sterka atvinnustefnu, stór fyrirtæki eru að horfa til okkar, til að mynda landeldi Samherja og stór uppbygging gagnaveranna Verne og AtNorth. Við erum að þróa verkefni í öllum höfnunum okkar og erum að byggja upp spennandi tækifæri fyrir verslun og þjónustu.
Samfylkingin mun standa vaktina áfram, með ykkar stuðning, því við erum hér fyrir fólkið í bænum.
Guðný Birna,
oddviti Samfylkingar í Reykjanesbæ






