Landsbankinn - 12. maí
Landsbankinn - 12. maí

Aðsent

Kjósum Viðreisn, kjósum nýja kynslóð
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 00:46

Kjósum Viðreisn, kjósum nýja kynslóð

Viðreisn býður nú fram í Reykjanesbæ í fyrsta sinn. Það eitt og sér skiptir máli, því hvernig gerum við góðan bæ enn betri? Með því að kjósa nýja kynslóð. Stundum þarf einfaldlega nýja sýn og aðra nálgun til að sjá hlutina í öðru ljósi. Með okkur koma ferskir vindar og kraftur til breytinga sem endurspeglast ekki af gömlum vana, heldur framtíðarsýn og ábyrgð til að móta samfélagið saman.

Í samtölum sem við höfum átt við ykkur, íbúa Reykjanesbæjar, hefur komið skýrt fram að tækifæri eru til að hugsa hlutina upp á nýtt og bæta þá enn frekar, svo að bærinn okkar verði betur í stakk búinn að mæta áskorunum framtíðarinnar. Við búum í frábæru samfélagi þar sem mannauðurinn er mikill, atvinnulífið öflugt og tækifærin fjölmörg, en við vitum líka að við getum gert enn betur. Við getum byggt upp fjölbreyttara atvinnulíf, styrkt grunnstoðir samfélagsins og tryggt að allir íbúar njóti góðrar þjónustu sama á hvaða aldri þeir eru eða við hvaða aðstæður þeir búa.

Aðalbros
Aðalbros

Viðreisn leggur ríka áherslu á ábyrgan rekstur bæjarins. Það skiptir máli að halda vel utan um fjármunina svo að við getum gefið samfélaginu okkar það sem raunverulega skiptir máli, öryggi, velferð og aukin lífsgæði til framtíðar. Við munum fjölga atvinnutækifærum og byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf. Það gerir samfélagið okkar sterkara og stöðugra. Við viljum að ungt fólk sjái framtíð sína hér og að það þurfi ekki að flytja burt til að finna spennandi störf eða tækifæri. Það er einnig mikilvægt að unga fólkið okkar hafi tækifæri á að geta fjárfest í eigin húsnæði og finni fyrir öryggi í stöðugu og fjölskylduvænu samfélagi. Velferð skiptir okkur höfuðmáli. Í Reykjanesbæ á að vera gott að búa og ala börn. Við viljum að hér finni öll fyrir öryggi, stuðningi og tækifærum til að blómstra. Öll þurfa að geta verið þau sjálf í samfélagi þar sem fjölbreytileiki er styrkur og allir fá tækifæri til að taka þátt.

Nú eru aðeins nokkrir dagar í kosningar. Hér eru tækifæri sem bíða þess að vera gripin. Viðreisn er tilbúin í þá vinnu. Við munum hlusta, móta samfélagið með ykkur og taka ábyrgð. Við erum öflugur hópur frambjóðenda, nýtt afl með skýra stefnu til framtíðar. Við erum ekki hér vegna sérhagsmuna, heldur vegna hugsjóna og ákalls bæjarbúa um að fá ferska vinda sem geta gert Reykjanesbæ enn betri. Með því að kjósa nýja kynslóð eruð þið ekki bara að velja fólk, þið eruð að gefa framtíðinni raunverulegt tækifæri.

Kjósum nýja kynslóð, kjósum Viðreisn þann 16. maí næstkomandi

Arnar Páll Guðmundsson,
oddviti Viðreisnar í Reykjanesbæ

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar