Aðsent

Tími breytinga í Reykjanesbæ
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 01:44

Tími breytinga í Reykjanesbæ

Fyrir tveimur árum breyttist líf okkar fjölskyldunnar á augabragði þegar við þurftum að yfirgefa heimili okkar í Grindavík. Þá tóku Reykjanesbær og bæjarbúar á móti okkur af þeirri hlýju, samstöðu og styrk sem einkennir þetta samfélag. Hér fundum við nýtt heimili.

Hér sjáum við Silla framtíð fyrir strákana okkar. Hér vilja þeir alast upp, eignast vini, læra, starfa og byggja sitt líf. Og hér viljum við eldast saman í samfélagi sem við trúum á og viljum leggja allt okkar af mörkum til að gera enn betra.

Aðalbros
Aðalbros

Á laugardaginn göngum við bæjarbúar að kjörborðinu og veljum leiðina áfram næstu fjögur árin. Í mínum huga er valið skýrt.

Viljum við áframhaldandi stjórn með tilheyrandi hærri álögum, einsleitri blokkabyggð og lausatökum í útlendingamálum? Eða viljum við nýja forystu með ábyrgum rekstri, lægri álögum, öflugra atvinnulífi og fallegra nærumhverfi? Um þetta snúast þessar kosningar.

Undanfarnar vikur hef ég rætt við þúsundir bæjarbúa og skilaboðin eru skýr: fólk vill breytingar. Fólk vill ekki fleiri loforð sem gleymast eftir kosningar, það vill einfaldlega bæ sem virkar. Fallegt og öruggt nærumhverfi, leikskólapláss þegar þess þarf, skatta sem heimilin ráða við og fjölbreytta uppbyggingu þar sem fjölskyldur hafa raunverulegt val um hvernig þær vilja búa.

Ég finn líka sterkt fyrir því að fólk er orðið þreytt á stjórnmálum sem snúast meira um afsakanir og fortíðina en lausnir og framtíðina.

Við búum að mestu tækifærum landsins og nú þurfum við að sameinast um að vera stolt af bænum okkar og tala hann upp í hvívetna hvar sem við getum.

Við í Sjálfstæðisflokknum viljum lækka álögur á heimilin með ábyrgari rekstri bæjarins. Við viljum fjölbreyttari íbúðauppbyggingu í stað þess að steypa öllum í sama mótið. Við viljum setja börnin raunverulega í fyrsta sæti með sterkum leikskólum, öflugum grunnskólum og auknum stuðningi við íþrótta- og æskulýðsstarf.

En ekkert af þessu getur tekist nema við náum að skapa umhverfi þar sem atvinnulífið getur blómstrað. Tækifærin hér á Suðurnesjum eru einstök og með réttum ákvörðunum getum við gert Reykjanesbæ að einum besta bæ landsins fyrir fjölskyldur og fyrirtæki.

Reykjanesbær á að vera samfélag þar sem fólk finnur fyrir öryggi, tækifærum og stolti. Það er sú leið sem Sjálfstæðisflokkurinn vill fara næstu fjögur árin.

Með ykkar stuðningi getum við hafið nýtt sóknarskeið í bæ tækifæranna.

Vilhjálmur Árnason

Oddviti Sjálfstæðisflokksins

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar