Aðsent

Reykjanesbær, besti bærinn á Íslandi til að ala upp börn
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 00:50

Reykjanesbær, besti bærinn á Íslandi til að ala upp börn

Framsókn vill byggja samfélag þar sem barnafjölskyldur finna fyrir öryggi, stuðningi og raunverulegum jöfnum tækifærum í daglegu lífi. Markmið okkar er skýrt, að Reykjanesbær sé besti bærinn á Íslandi til að ala upp börn.

Fyrstu ár barnsins skipta sköpum. Þess vegna ætlar Framsókn að lækka kostnað fyrir fjölskyldur með því að samræma greiðslur til dagforeldra við leikskólagjöld. Með þeirri breytingu lækkar kostnaður foreldra um 43 þúsund krónur á mánuði. Þetta er stórt réttlætismál fyrir ungar fjölskyldur sem standa frammi fyrir miklum útgjöldum á fyrstu árum barnauppeldis og í því efnahagsástandi sem við búum við.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Framsókn ætlar einnig gera frístundaheimili gjaldfrjáls fyrir börn í fyrsta bekk. Sú aðgerð léttir fjárhagsbyrði fjölskyldna um allt að 24 þúsund krónur á mánuði og tryggir að öll börn hafi jafnan aðgang að öruggu og uppbyggilegu starfi eftir skóla.

Við ætlum að hækka frístundastyrkinn í 75 þúsund krónur á kjörtímabilinu og lækka aldursviðmið niður í tveggja ára aldur. Með því tryggjum við að fleiri börn geti tekið þátt í íþróttum, listum og tómstundum óháð efnahag foreldra. Frístundir eru ekki forréttindi heldur mikilvæg fjárfesting í lýðheilsu, félagslegum tengslum og vellíðan barna og ungmenna. Svo ætlum við að halda áfram uppbyggingu félagsmiðstöðva í hverfin og styðja við Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar.

Framsókn leggur sérstaka áherslu á að öll börn fái stuðning við hæfi. Það á jafnt við um börn með fatlanir, börn með fjölbreyttar stuðningsþarfir og börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Öflugt skólasamfélag byggist á inngildingu, snemmtækum stuðningi og faglegri þjónustu sem mætir börnum þar sem þau eru stödd. Við viljum efla skólaþjónustu upp að 18 ára aldri, styrkja ráðgjöf og tryggja að börn og fjölskyldur fái þann stuðning sem þörf er á.

Þetta gerum við fyrir þig og framtíð Reykjanesbæjar

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,
oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar