Kveikti í sér í kirkjugarðinum í Keflavík
Einstaklingur kveikti í sér í gamla kirkjugarðinum í Keflavík í morgun. Hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða.
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning kl. 09:10 um einstakling í ójafnvægi í Reykjanesbæ. Þegar lögregla kom á vettvang var viðkomandi ógnandi, æstur og fór ekki að fyrirmælum lögreglunnar.
Viðkomandi hafði hellt yfir sig bensíni og hótaði að kveikja í sér. Lögregla beitti rafvarnarvopni til að yfirbuga viðkomandi, sem virtist ekki skila árangri. Viðkomandi nær þá að bera eld að sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis. Hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða.
Lögregla segir að frekari upplýsingar verða ekki veittar.






