Njarðvík Íslandsmeistari í körfubolta kvenna
„Þetta eru stór og merkileg tímamót að vinna Íslandsmeistaratitil í efstu deild, þann fyrsta á heimavelli í 35 ár og auðvitað mjög ánægjulegt. Við vildum klára þetta á heimavelli og stelpurnar voru magnaðar í þessum leik,“ sagði Einar Árni þjálfari kvennaliðs Njarðvíkinga eftir sigur á Haukum í fjórða leik liðanna í IceMar höllinni í kvöld. Lokatölur 95-80 fyrir UMFN og einvígið 1-3.
Það var ljóst strax á fyrstu mínútum leiksins að heimakonur ætluðu sér alla leið því þær voru gríðarlega einbeittar, grimmar í vörn og hittu vel. Þær náðu góðu forskoti í fyrsta leikhluta 18-10 en Hauka náðu að eins að klóra í bakkann í lok annars leikhluta og staðan í hálfleik 47-40.
Njarðvíkingar héldu áfram og sýndu allar sínar bestu hliðar í þriðja leikhluta sem þær unnu með fjórtán stigum. Munurinn var of mikill fyrir Haukana, meistarana frá 2025 eftir sigur UMFN, og Njarðvíkingar fögnuðu sanngjörnum sigri og öruggum sem og einvíginu 1-3.
Danielle Rodriguez fór á kostum í leiknum, stýrði leik Njarðvíkinga í vörn og sókn og skoraði 36 stig, tók 9 fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Hún er magnaður leiðtogi og frábær í körfubolta. Brittany Dinkins gerði líka vel og var með 25/11 fráköst og 11 stoðsendingar. Þessar tuttugu stoðsendingar rötuðu á aðra leikmenn UMFN sem stóðu sig frábærlega. Ungu Njarðvíkurstellpurnar, þær Hulda María Agnarsdóttir, Helena Rafnsdóttir, Sara Björk Logadóttir og Krista Gló Magnúsdóttir nýttu sér færin sem þær fengu og eiga framtíðina fyrir sér.
Einar Árni þjálfari sagðist ekki eiga von á miklum breytingum á liðinu fyrir næstu leiktíð. Þjálfarar og leikmenn væru með áframhaldandi samninga.
Njarðvíkurkonur urðu bikarmeistarar 2025 og nú bættu þær Íslandsmeistaratitlinum við sem þær vinna á heimavelli. Það er ekki slæm byrjun í nýju keppnis- og æfingahúsi við Stapaskóla.
Njarðvík-Haukar 95-70 (18-10, 29-30, 30-16, 18-14)
Njarðvík: Danielle Victoria Rodriguez 36/9 fráköst/7 stoðsendingar, Brittany Dinkins 25/11 fráköst/11 stoðsendingar, Paulina Hersler 9, Hulda María Agnarsdóttir 9, Krista Gló Magnúsdóttir 6, Sofia Roma 4/9 fráköst/3 varin skot, Sara Björk Logadóttir 3, Helena Rafnsdóttir 3, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Inga Lea Ingadóttir 0, Helga Jara Bjarnadóttir 0.
Haukar: Krystal-Jade Freeman 25/13 fráköst, Amandine Justine Toi 17, Þóra Kristín Jónsdóttir 16/5 stoðsendingar, Catherine Mosengo Masa 4, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 3, Lovísa Björt Henningsdóttir 2, Ásdís Freyja Georgsdóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0, Agnes Jónudóttir 0, Sigrún Björg Ólafsdóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Bjarki Þór Davíðsson, Jóhannes Páll Friðriksson
Áhorfendur: 1032
Viðureign: 3-1
Þjálfararnir Einar Árni og Ólafur Helgi fögnuðu titilinum innilega. VF/hilmarbragi.








