Íþróttir

Fyrsti sigur Grindavíkur í höfn í Lengjudeildinni
Úr leik Grindavíkur og Njarðvíkur á dögunum.
Sunnudagur 17. maí 2026 kl. 20:54

Fyrsti sigur Grindavíkur í höfn í Lengjudeildinni

Grindavík fagnaði sínum fyrsta sigri á tímabilinu í Lengjudeildinni í dag þegar liðið lagði Völsung að velli, 3–1, á Stakkavíkurvelli. Með sigrinum er Grindavík enn taplaust með sex stig, en Húsvíkingar sitja eftir með tvö stig.

Grindvíkingar komust yfir strax á 3. mínútu. Haraldur Björgvin Eysteinsson skallaði hornspyrnu Stefáns Jóns Friðrikssonar í netið. Gestirnir létu það þó ekki á sig fá, unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn og á 17. mínútu jafnaði Dagbjartur Búi Davíðsson metin með óverjandi skoti. Staðan var 1–1 í hálfleik.

Aðalbros
Aðalbros

Heimamenn mættu ákveðnir til síðari hálfleiks og á 52. mínútu kom Heiðar Snær Ragnarsson Grindavík aftur yfir eftir laglega sendingu frá Haraldi Björgvini.

Völsungar sóttu fast í kjölfarið og voru líklegir til að jafna, en fengu blauta tusku í andlitið á 66. mínútu. Eftir slæm mistök og misskilning í vörn Völsungs hirti Rafael Victor boltann og gerði út um leikinn, lokatölur 3–1 fyrir Grindavík.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar