Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Íþróttir

Skagfirsk sveifla í Grindavík
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 22:05

Skagfirsk sveifla í Grindavík

Það var skagfirsk sveifla í Grindavík í kvöld og heimamenn þurftu að játa sig sigraða framan við troðfullt hús af áhorfendum, 1200 manns í troðfullri stúku og nokkur hundruð til viðbótar í gamla salnum að fylgjast með á risaskjá. Norðanmenn voru sterkari, náðu sér í líflínu og komu í veg fyrir að vera sópað á ögurstundu. Eftir svakalegan leik knúði Tindastóll fram 89-94 sigur og tryggði sér fjórða leikinn í Síkinu.

Leikurinn var hnífjafn frá fyrstu mínútu og liðin skiptust á því að leiða í fyrri hálfleik. Tindastóll náði þó fimm stiga forystu rétt fyrir hlé eftir að hafa nýtt sér klaufaskap í vörn Grindvíkinga.

Aðalbros
Aðalbros

Í síðari hálfleik virtist ætla að fara illa fyrir heimamönnum. Þegar þriðji leikhluti var við það að fjara út voru Stólarnir komnir með sjö stiga forystu og Grindavík í hálfgerðu þroti. Þá steig stórstjarnan Deandre Donte Kane fram. Hann setti tvo ótrúlega þrista í röð – þann síðari nánast frá miðju – og breytti stöðunni í 68-69 fyrir lokafjórðunginn. Stúkan ætlaði um koll að keyra. Mynd af skotinu má sjá hér í fréttinni.

Rosalegur þristur Kane frá miðju í lok þriðja leikhluta gjörsamlega kveikti í húsinu. VF/hilmarbragi

Spennan í fjórða leikhluta var nánast óbærileg. Þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir setti Adomas Drungilas niður risavaxinn þrist sem kom Tindastóli í 76-82. Grindavík neitaði að gefast upp og Ólafur Ólafsson barðist hetjulega við að halda í líflínuna.

En Tindastóll sýndi meistaratakta þegar á hólminn var komið. Þegar 44 sekúndur voru eftir og Grindavík þurfti á körfu að halda klikkaði Jeremy Pargo á þristi. Stólarnir refsuðu samstundis með „layup“ körfu hinum megin og juku muninn í átta stig. Þá var ljóst í hvað stefndi.

Þótt Ólafur Ólafsson hafi sett niður þrist þegar 40 sekúndur voru eftir til að kveikja vonarglætu, reyndist Dedrick Basile ískaldur á vítalínunni og innsiglaði sigurinn.

Með þessum sigri minnkar Tindastóll muninn í 2-1 í einvíginu. Körfuboltaveislunni er ekki lokið – titillinn fer ekki á loft í kvöld og liðin mætast næst í „Síkinu“ á Sauðárkróki þar sem búast má við annarri rosalegri rimmu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar