Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí

Íþróttir

Keflavík úr leik eftir framlengdan leik
Frá leik Keflavíkur og Víkings í kvöld. VF/hilmarbragi
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 22:00

Keflavík úr leik eftir framlengdan leik

Það var boðið upp á mikla dramatík og hörkubaráttu þegar Keflavík og Víkingur R. mættust í 2. umferð Mjólkurbikars kvenna á HS Orku vellinum í kvöld. Ekkert var skorað í venjulegum leiktíma en gestirnir úr Fossvoginum reyndust sterkari í framlengingunni og tryggðu sér 0-2 sigur og sæti í næstu umferð.

Leikurinn var hnífjafn og spennandi framan af, þar sem bæði lið vörðust vel og gáfu fá færi á sér. Eftir markalausan og harðan 90 mínútna slag þurfti því að grípa til framlengingar til að knýja fram úrslit.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Það var loksins á 100. mínútu leiksins sem ísinn var brotinn. Hin stórhættulega Jasmín Erla Ingadóttir reyndist þá dýrmæt fyrir Víkinga þegar hún kom boltanum í netið og kom gestunum í 0-1.

Keflvíkingar lögðu allt í sölurnar til að jafna metin það sem eftir lifði framlengingarinnar, en þær áttu erfitt uppdráttar gegn þéttri vörn Víkings. Það fór svo að Helena Ósk Hálfdánardóttir innsiglaði sigur gestanna með öðru marki Víkings á lokamínútunum.

Svekkjandi tap hjá Keflavík sem stóð í sterku liði Víkings bróðurlega í 90 mínútur, en það eru Víkingar sem fagna áframhaldandi veru í Mjólkurbikarnum þetta árið.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar