Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Íþróttir

Njarðvík tókst ekki að sópa Haukum
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 22:22

Njarðvík tókst ekki að sópa Haukum

Það verður beðið með fögnuðinn í Njarðvík um sinn, því Haukum tókst að halda lífi í úrslitaeinvíginu í Bónus deild kvenna með 77–69 sigri á Ásvöllum í kvöld. Njarðvík leiðir nú einvígið 2–1, en liðinu tókst ekki að nýta fyrsta tækifærið til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með 3–0 sigri.

Njarðvíkurkonur mættu öflugar til leiks og leiddu 4–13 snemma í fyrsta leikhluta. Þá hrundi leikur liðsins hins vegar og Haukar svöruðu með gríðarlegum 17–2 kafla sem breytti stöðunni í 21–15 fyrir heimakonur. Njarðvík tókst reyndar að komast yfir í stutta stund í öðrum leikhluta, 29–30, en Haukar lokuðu hálfleiknum af krafti og leiddu með 13 stigum í hléi, 43–30.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í síðari hálfleik eltu Njarðvíkingar allan tímann. Munurinn hélst lengst af í kringum 10–14 stig og þótt baráttan hafi verið til staðar náðu gestirnir aldrei að ógna forystu Hauka af alvöru fyrr en í blálokin. Brittany Dinkins dró vagninn fyrir Njarðvík með 21 stig og 13 fráköst, en hjá Haukum var Krystal-Jade Freeman óstöðvandi með 26 stig og 14 fráköst.

Undir lokin hleypti Hulda María Agnarsdóttir spennu í leikinn með þremur vítaskotum sem minnkuðu muninn í fimm stig þegar 10 sekúndur voru eftir, en Haukar héldu út og fögnuðu sanngjörnum sigri. Skyggni á leikinn var þó nokkuð dregið af ólætum í stúkunni, þar sem áhorfandi sást kasta hlutum í átt að stuðningsmönnum gestanna, sem er engum til sóma í svona mikilvægum leik.

Næsti leikur liðanna fer fram í Ljónagryfjunni í Innri Njarðvík á sunnudagskvöld. Þar fá Njarðvíkurkonur annað tækifæri til að tryggja sér titilinn á heimavelli fyrir framan sína stuðningsmenn.

Atkvæðamestar hjá Njarðvík:

Brittany Dinkins: 21 stig / 13 fráköst

Paulina Hersler: 13 stig / 4 fráköst

Danielle Victoria Rodriguez: 13 stig / 6 fráköst / 6 stoðsendingar

Helena Rafnsdóttir: 10 stig / 5 fráköst


Bónus deild kvenna, Úrslitakeppni

Haukar-Njarðvík 77-69 (21-15, 22-15, 18-19, 16-20)
Haukar: Krystal-Jade Freeman 26/14 fráköst, Amandine Justine Toi 17/5 fráköst, Catherine Mosengo Masa 15/8 fráköst, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 7, Þóra Kristín Jónsdóttir 7/4 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Sigrún Björg Ólafsdóttir 2/4 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 0, Ásdís Freyja Georgsdóttir 0, Lovísa Björt Henningsdóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0, Agnes Jónudóttir 0.
Njarðvík: Brittany Dinkins 21/13 fráköst, Paulina Hersler 13/4 fráköst, Danielle Victoria Rodriguez 13/6 fráköst/6 stoðsendingar, Helena Rafnsdóttir 10/5 fráköst, Hulda María Agnarsdóttir 9, Krista Gló Magnúsdóttir 3/6 fráköst, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Inga Lea Ingadóttir 0, Sofia Roma 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Sara Björk Logadóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Jakob Árni Ísleifsson
Áhorfendur: 834
Viðureign: 1-2

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar