Íþróttir

Grindavík fordæmir dósakast og biður stuðningsmenn Tindastóls afsökunar
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 13:41

Grindavík fordæmir dósakast og biður stuðningsmenn Tindastóls afsökunar

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur send frá sér yfirlýsingu vegna alvarlegs atviks sem kom upp á fyrsta leik liðsins gegn Tindastóli. Þar kastaði áhorfandi dós í átt að stuðningsfólki gestaliðsins í HS Orku höllinni.

Stjórn deildarinnar fordæmir hegðunina alfarið og segir hana í algjörri andstöðu við gildi félagsins. Í yfirlýsingunni kemur fram að slík framkoma eigi ekkert erindi í íþróttahús þar sem hún skapi hættu fyrir aðra gesti. Deildin biður stuðningsfólk Tindastóls einlæglega afsökunar og leggur áherslu á að gestir eigi alltaf að geta notið leikja í öruggu og virðingarfullu umhverfi.

Aðalbros
Aðalbros

Búið er að bregðast við málinu og hefur viðkomandi áhorfandi verið settur í bann á næsta heimaleik Grindavíkur. Félagið hvetur alla stuðningsmenn sína til að standa saman um að halda heimavellinum kraftmiklum og skemmtilegum á grundvelli góðrar framkomu og öryggis.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar