Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Íþróttir

Njarðvík úr leik í Mjólkurbikarnum
Fimmtudagur 14. maí 2026 kl. 14:17

Njarðvík úr leik í Mjólkurbikarnum

Njarðvíkingar eru fallnir úr leik í Mjólkurbikar karla þetta árið eftir 5–2 tap gegn Aftureldingu í 2. umferð keppninnar í gærkvöldi. Leikið var á gervigrasinu við Varmá í Mosfellsbæ fyrir framan tæplega 300 áhorfendur.

Heimamenn í Aftureldingu mættu af miklum krafti og komust yfir strax á 12. mínútu þegar Aron Elí Sævarsson skoraði fyrsta mark leiksins. Staðan var 1–0 í hálfleik, en í síðari hálfleik opnuðust flóðgáttirnar.

Aðalbros
Aðalbros

Elmar Kári Enesson Cogic tvöfaldaði forystu Mosfellinga á 54. mínútu og tíu mínútum síðar bætti Bart Kooistra við þriðja markinu. Óðinn Bjarkason gerði fjórða markið á 68. mínútu og Elmar Kári var aftur á ferðinni á 73. mínútu þegar hann skoraði sitt annað mark og fimmta mark Aftureldingar.

Njarðvíkingar lögðu þó ekki árar í bát þrátt fyrir þunga undiröldu. Hrafn Guðmundsson minnkaði muninn á 83. mínútu og skömmu fyrir leikslok bætti Haraldur Smári Ingason öðru marki við fyrir gestina af Suðurnesjum. Lengra komust þeir grænklæddu þó ekki og niðurstaðan sannfærandi sigur heimamanna.

Eftir þessi úrslit geta Njarðvíkingar einbeitt sér fullum fetum að Lengjudeildinni, en ljóst er að varnarleikurinn þarf að vera þéttari en raunin var í Mosfellsbænum í gær.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar