Glæsilegt 90 ára afmælishóf Víðis í Garði
Knattspyrnufélagið Víðir fagnaði stórafmæli sínu með glæsilegri veislu í íþróttahúsinu í Garði um helgina. Á fjórða hundrað gesta mættu til að fagna þessum merka áfanga, njóta matar og skemmtunar, og heiðra þá fjölmörgu einstaklinga sem hafa lagt félaginu lið í gegnum áratugina.
Hápunktur kvöldsins var afhending viðurkenninga fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins og knattspyrnunnar á Íslandi.
Heiðursfélagar og æðstu merki Víðis
Tveir nýir heiðursfélagar voru útnefndir í hófinu, þau Hrönn Edvinsdóttir og Guðmundur Jens Knútsson, fyrir langt og dýrmætt starf fyrir félagið.
Gullmerki Víðis hlutu: Jón Ragnar Ástþórsson, Sólmundur Einvarðsson, Gísli Heiðarsson, Eva Rut Vilhjálmsdóttir, Sigríður Þorleifsdóttir, Björn Vilhelmsson, Guðjón Guðmundsson, Gísli Eyjólfsson, Jónatan Ingimarsson, Tryggvi Einarsson, Magnús Þór Magnússon, Gunnar H. Häsler og Ástþór Sigurðsson.
Silfurmerki Víðis hlutu: Sóley Gunnarsdóttir, Einar Karl Vilhjálmsson, Guðmundur Sigurðsson, Guðmundur Björgvin Jónsson, Vilhjálmur Einarsson, Karen Jónsdóttir, Atli Rúnar Hólmbergsson, Björn Bergmann Vilhjálmsson, Gunnar Birgir Birgisson, Sigurður Elíasson, Jóhann Helgi Björnsson, Halldór Gísli Ólafsson, Þórunn Katla Tómasdóttir, Rafn Vilbergsson og Guðjón Árni Antoníusarson.
Viðurkenningar frá KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands lét sig ekki vanta og veitti nokkrum lykilmönnum viðurkenningar fyrir framlag þeirra til hreyfingarinnar.
Sérstök viðurkenning: Sigurður Ingvarsson hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir einstakt og óeigingjarnt framlag. Sigurður er goðsögn innan félagsins og var áður sæmdur gullmerki KSÍ á 70 ára afmæli Víðis árið 2006.
Gullmerki KSÍ: Hrönn Edvinsdóttir hlaut gullmerki sambandsins.
Silfurmerki KSÍ: Guðmundur Jens Knútsson, Guðjón Guðmundsson, Eva Rut Vilhjálmsdóttir, Jón Ragnar Ástþórsson, Sólmundur Einvarðsson, Sigríður Þorleifsdóttir og Einar Karl Vilhjálmsson.
Það er ljóst að krafturinn í Víðismönnum er síst að minnka þótt félagið sé komið á tíræðisaldur og samfélagið í Garði stendur þétt við bakið á sínu félagi.









