Viðræður ganga vel í Suðurnesjabæ
Formlegar meirihlutaviðræður Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ og Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa gengið vel. Enginn málefnalegur ágreiningur hefur komið upp í viðræðunum en báðir flokkar hafa lagt áherslu á að vanda vel til verks með það að markmiði að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar og vinna áfram að sameiningu byggðakjarnanna tveggja í Suðurnesjabæ.
„Ef sami taktur heldur áfram í viðræðunum má gera ráð fyrir því að málefnasamningur verði tilbúinn í næstu viku þar sem helstu verkefni kjörtímabilsins munu liggja fyrir ásamt skiptingu hlutverka og nefnda“ er haft eftir oddvitum flokkanna, þeim Svavari Grétarssyni, oddvita S-listans og Hauki Andreassyni, oddvita D- listans, í tilkynningu.







