Sigurhátíð í Grindavík
Tekið var á móti Íslandsmeisturum Grindavíkur í körfuknattleik karla með mikilli viðhöfn í Grindavík nú í kvöld. Stór hópur Grindvíkinga hafði safnast saman við innkomuna í bæinn með fána og blys til að fagna Íslandsmeisturunum sem var ekið á stórum vörubíl með bikarana á lofti í gegnum bæinn. Hópurinn kom svo allur saman í íþróttahúsinu þar sem var fagnað. Meðfylgjandi eru tvær myndir sem voru teknar þegar liðið kom til bæjarins síðdegis. Nánar verður fjallað um hátíðina og birt viðtöl hér á vf.is á morgun.
Hér að neðan er svo myndskeið sem Jón Steinar Sæmundsson tók við sama tækifæri.







