Íþróttir

Þessi titill mun gefa Grindvíkingum mikið
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 18. maí 2026 kl. 21:57

Þessi titill mun gefa Grindvíkingum mikið

„Ég er ekki búinn að átta mig á þessu, þetta er ólýsanleg tilfinning. Loksins tókst þetta. Við sýndum gríðarlegan karakter að klára þetta dæmi og þessi titill mun gefa öllum Grindvíkingum mikið,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur í viðtali við sérfræðinga Sýnar eftir að liðið tryggði sér titilinn í kvöld.

„Við byrjuðum mjög vel og vorum einhvern veginn með þetta allan tímann. Frammistaða Pargos var auðvitað gríðarlega mikilvæg og hann sýndi hversu góður hann er. Það var ofboðslega gaman að fylgjast með honum en líka ungu strákunum, Arnóri Tristan sem hefur verið að koma inn eftir meiðsli, Ragnari og Unnsteini. Fyrir leikinn vorum við ákveðnir í að láta Stólana hafa fyrir okkur því við vorum ekki með Óla og Kane. En bara…þetta var geggjað. Að vinna þennan titil mun gefa öllum Grindvíkingum, sem hafa verið með vindinn í bakið, mikið,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson en bróðir hans, Ólafur, fyrirliði liðsins, lyfti Íslandsbikarnum í leikslok.

Aðalbros
Aðalbros

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar