Sögulegar kosningar Framsóknar í Reykjanesbæ – við munum aldei gleyma!
Eftir kosningahelgina er vert að skoða niðurstöðu Framsóknar í ljósi sögunnar. Árið 2018 fékk Framsókn í Reykjanesbæ 883 atkvæði eða 13,9% og tvo menn kjörna.
Í kjölfarið settist flokkurinn í meirihluta í Reykjanesbæ. Þetta heyrði til tíðinda enda hafði flokkurinn lengi aðeins átt einn mann í bæjarstjórn. Fjórum árum seinna hlaut Framsókn 1536 atkvæði eða tæp 23% atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa sem hafði ekki gerst í áratugi og aldrei í sögu Reykjanesbæjar.
Fyrir nýafstaðnar kosningar var ákveðið að halda rafrænt prófkjör í Framsókn í Reykjanesbæ. Það tókst mjög vel. Ekki hafði verið haldið rafrænt prófkjör áður og tóku 67% félagsmanna þátt. Í kosningunum nú 16. maí var enn eitt metið sett þar sem flokkurinn fékk 2254 atkvæði eða rúmlega 26% og hélt sínum þremur bæjarfulltrúum. Næsti maður inn var fjórði fulltrúi Framsóknar. Einn af hverjum fjórum kjósendum treysti Framsókn best til að vera í forystu fyrir fjórða stærsta sveitarfélag landsins.
Það sem vekur athygli er að Framsókn hefur verið í meirihluta undanfarin átta ár og því eru skilaboð kjósenda skýr. Ánægjan með störf okkar hefur farið vaxandi. Hvort sem hlutskipti Framsóknar verður í meirihluta eða minnihluta þá er þessi árangur byggður upp af fólkinu í flokknum. Ykkur sem myndið grasrót flokksins í bæjarfélaginu. Ykkur sem vinnið saman af heilindum fyrir samfélagið sem við búum í.
Kosningabaráttan að þessu sinni var bæði afskaplega skemmtileg, krefjandi og eftirminnileg. Ég sem formaður Framsóknarfélagsins er óendanlega stoltur af frambjóðendum okkar og samvinnu við félagamenn á undanförnum mánuðum.
Sem fyrr trúi ég því að okkar bestu tímar séu fram undan.
Bestu þakkir fá frambjóðendur og allir þeir sem stóðu vaktina með okkur. Takk fyrir að leggja líf ykkar og sál í að gera samfélagið okkar betra.
Skilaboð mín til kjósenda Framsóknar eru skýr. Takk fyrir stuðninginn. Þið veitið okkur valdið til að vinna að mikilvægum og þörfum verkefnum, samfélaginu okkar til heilla. En hafið það alveg á hreinu. Framsókn mun standa vaktina. Framsókn mun aldrei sofna á verðinum. Framsókn stendur með bæjarbúum og við munum hvergi kvika í hagsmunagæslu okkar fyrir samfélagið í Reykjanesbæ. Við munum aldrei gleyma því fyrir hverja við störfum.
Jóhann Friðrik,
formaður Framsóknarfélags Reykjanesbæjar og varaþingmaður.







