Aðsent

Lögbundin þjónusta er ekki valkvæð
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 16:50

Lögbundin þjónusta er ekki valkvæð

Barnafjölskyldur með börn með sérþarfir eiga rétt á þjónustu sem tryggir þeim stuðning, öryggi og raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Í dag eru hins vegar of margar fjölskyldur í Reykjanesbæ sem upplifa að bæjarfélagið nái ekki að sinna lögbundnum skyldum sínum gagnvart þessum hópi. Biðlistar eru of langir, skammtímaúrræði of fá og viðbrögð kerfisins of hæg þegar fjölskyldur þurfa mest á að halda.

Fjölskyldur sem fá ekki þann stuðning sem þær eiga rétt á upplifa oft aukið álag, félagslega einangrun og verri líðan. Börnin missa af mikilvægum tækifærum til þroska og þátttöku. Ef við sinnum þessum málum ekki tímanlega verður kostnaðurinn til lengri tíma bæði mannlegur og fjárhagslegur mun meiri fyrir samfélagið allt.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Við verðum að hafa kjark til að forgangsraða rétt. Lögbundin þjónusta á alltaf að vera í fyrsta sæti áður en fjármagni er varið í verkefni sem eru ekki lögbundin.

Sjálfbærni snýst ekki aðeins um fjármál eða umhverfi. Hún snýst líka um samfélagið okkar.  Hvernig við hugsum um fólkið okkar og hvort við búum til aðstæður þar sem allir geta blómstrað. Hvort sem um er að ræða skólamál eða velferðarmál þá eigum við að hlúa að öllum íbúum og tryggja að allir fái raunveruleg tækifæri til að vaxa og dafna. Þegar einstaklingar í samfélaginu fá stuðning til að blómstra verður samfélagið samheldnara, stoltara og öruggara fyrir alla.

Viðreisn vill byggja samfélag þar sem engin fjölskylda stendur ein eftir og þar sem börn með sérþarfir fá þann stuðning sem þau eiga rétt á, þegar þau þurfa á honum að halda.

Viðreisn vill fjárfesta í fólkinu til framtíðar og skapa með því betri bæ .

Ásta Kristín Guðmundsdóttir

Kennari, verkefnastjóri og markþjálfi
Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar