Aðsent

Um hvað snúast kosningamálin? Aha augnablikið mitt!
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 16:41

Um hvað snúast kosningamálin? Aha augnablikið mitt!

Ég heyri mikið rætt um íþrótta- og tómstundamál, hér eiga að vera íþróttamannvirki á heimsmælikvarða.

Ég heyri að hér eigi að draga úr álögum á heimilin með ábyrgari rekstri bæjarins, í þeim tilgangi að gera breytingar fyrir bæinn.

Aðalbros
Aðalbros

Ég heyri að hér eigi að fjölga atvinnutækifærum og byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf, í þeim tilgangi að gera stöðugra og sterkara samfélag.

Ég heyri líka mjög hátt og skýrt að hér hefur verið ábyrg stjórn í fjármálum og í uppbyggingu bæjarins.

Ég heyri að hér eigi að byggja upp samfélag þar sem barnafjölskyldur finni fyrir öryggi, stuðningi og raunverulegum jöfnum tækifærum í daglegu lífi.

Fyrir nokkrum vikum síðan saknaði ég umræðu um hvernig eigi að taka hönd um farsæld og velferð barna og fjölskyldna þeirra í Reykjanesbæ, sérstaklega þeirra sem standa frammi fyrir flóknum og fjölþættum vanda sem getur stafað af einhverju af eftirtöldu: Námslegum, félagslegum, hegðunarlegum, tilfinningalegum, líkamlegum og/eða andlegum vanda.

     Í viðleitni minni að finna þann stjórnmálaflokk sem myndi setja þessi mál á oddinn ákvað ég að lesa yfir allar stefnuskrár hinna fimm flokka sem eru í framboði, horfa á kappræður, umræður og lesa allt sem ég hef komist yfir fyrir þessar kosningar.

Það var eitt orð sem vakti athygli mína: Fjölskyldusvið.

Umræddur flokkur segir: Við munum stofna fjölskyldusvið og sameina þar undir velferðarmál og fræðslumál.

Ég hugsaði með mér: Hvað, erum við ekki með það? Ég fór því á vef Reykjanesbæjar og kannaði málið. Við erum með tvö svið sem sinna þessum málaflokki, það er að segja farsæld og velferð barna og þau eru Menntasvið og Velferðarsvið.

Ég ákvað því að kanna málið betur og fékk þau svör að við í Reykjanesbæ höfum tækifæri til þess að gera skipulagsbreytingar í þeim tilgangi að tryggja órofna þjónustu við börn og þá sérstaklega börn með stuðningsþarfir á þann hátt að hægt er að setja upp sameiginlega verkferla sem taka á ýmissi þjónustu sem heyrir undir bæði sviðin. Hér er verið að horfa til skipulagsbreytinga til þess að starfa eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (nr. 86/2021) og tryggja markmið laganna eins og segir í 1.kafla, 1.gr.: „Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana“.

     Vá hvað þetta setur hlutina í stórt samhengi fyrir mig! Af hverju? Jú vegna þess að ég finn fyrir fyrirstöðu í kerfinu okkar nú þegar og hef gert það í nokkur ár. Staðan er einfaldlega þannig að staðið er í vegi fyrir þjónustu og það er ekki í anda farsældarinnar. Það er svo oft sem ég hristi höfuðið yfir þessu og skil alls ekki hvað veldur. Síðast liðin fjögur ár hef ég verið að safna upplýsingum um hvað gæti verið að valda þessu og rætt við fjöldann allan af fjölskyldum sem búa hér í Reykjanesbæ og upplifa einmitt það að ekki sé verið að hlusta á þær, þær fái ekki þjónustu við hæfi eða þá þjónustu sem þau þurfa á að halda til þess einmitt að tryggja öryggi sitt og stuðning í gríðarlega erfiðum aðstæðum. Í kerfinu okkar er því miður mismunun við völd, þar sem fjölskyldur sem hafa efni og ráð til þess að leita sér einkarekinnar þjónustu gera það. Foreldrar og/eða forráðamenn í Reykjanesbæ hafa þær væntingar til sveitarfélagsins síns að það einmitt styðji við þær og veiti þeim jöfn tækifæri.

Ég sendi inn erindi til Menntaráðs á tímabilinu til þess að vekja athygli á þessari stöðu. Ég bíð ennþá svara við því erindi.

Ég er ekki fædd í gær kæru lesendur. Ég hef starfað við mennta- og velferðarmál síðast liðin 24 ár. Ég hef starfað hjá Reykjanesbæ lengstan hluta þess tíma. Ég hef unnið þróunarverkefni og rannsóknir á þessum tíma og niðurstaðan er skýr: Við þurfum að tryggja velferð og farsæld barns strax á leikskólastiginu! Þar þurfum við að grípa inn í og tryggja aðgang að þjónustu við hæfi. Á því stigi höfum við tækifæri til þess að jafna stöðu barns og tryggja að bilið á milli barna verði ekki orðið of mikið strax í 1. árgangi grunnskólans. Snemmbær stuðningur, snemmtæk íhlutun og inngrip, þurfa að eiga sér stað á fyrstu æviárum barna til þess að skila sem bestum árangri til framtíðar. Það er ekki að ástæðulausu að ég starfa í leikskóla. Mig langar að tryggja hverju barni slíka farsæld. Farsældarlögin voru sett á og samþykkt af þeirri ástæðu, okkur ber samkvæmt lögum að tryggja hverju barni og fjölskyldu þess farsæld. Allir eiga rétt á jöfnum tækifærum.

Þess vegna segi ég:

Við græðum ekkert á íþróttamannvirkjum á heimsmælikvarða ef það eru börn sem geta ekki mætt og stundað íþróttir vegna sinna áskorana í daglegu lífi.

Við getum ekki leyft okkur að draga úr álögum á heimilin ef við erum ekki að veita börnum þá þjónustu sem þau hafa rétt á samkvæmt lögum. Tryggjum það fyrst á komandi kjörtímabili og skoðum það á því næsta hvernig til hefur tekist og þá skulum við kanna möguleikann á því að lækka álögur.

Við erum stöðugt og sterkt samfélag þegar börnin okkar ljúka námi og snúa sterk tilbaka í okkar samfélag með atvinnutækifæri og atvinnu. Menntun hefur í för með sér margvíslegan ávinning bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og samfélagið í heild sinni. Okkar áhersla í Reykjanesbæ ætti því að vera á þann hátt að tryggja velferð og farsæld barna, unglinga og ungmenna á þann hátt að þeim líði nægilega vel til þess að geta stundað nám og/eða að þau hafi nægilegt sjálfstraust til þess að leita sér tækifæra í lífinu og skapa sér það líf sem þau sjá fyrir sér.

Reykjanesbær er nú þegar ábyrgt sveitarfélag í stjórn í fjármálum og í uppbyggingu bæjarins. Það er nú þegar litið til okkar vegna þess árangurs sem náðst hefur í fjármálastjórn bæjarins. Það er langur listi af málum sem ég gæti talið upp fyrir ykkur þar sem leitað er og horft til okkar. Sem dæmi langar mig að nefna tvennt: Það er faglega leikskólastarfið okkar sem starfsfólk í leikskólum stendur vörð um alla daga. Hitt er útfærsla námsmats með bókstöfum í grunnskólum Reykjanesbæjar. Í allri þeirri umræðu sem á sér stað í samfélagi okkar um það mál þá get ég sagt eitt: Holtaskóli hefur unnið gríðarlegt þrekvirki í þeim málum og er til eftirbreytni.

     Mig langar að við náum þessu markmiði á komandi kjörtímabili:

Byggjum upp samfélag þar sem barnafjölskyldur finna fyrir öryggi, stuðningi og raunverulegum jöfnum tækifærum í daglegu lífi.

Gerum það með því að setja farsæld barna í fyrsta sæti og tryggjum að í Reykjanesbæ verði Mennta- og velferðarsvið sameinað í Fjölskyldusvið sem tryggir órofna þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Við þurfum einmitt að stefna að innsta kjarna málsins og sá kjarni er að í leik- og grunnskólakerfinu okkar hér í Reykjanesbæ eru mikil sóknarfæri og til þess að nýta þau sem best þá þurfa kerfin á frekari þverfaglegri þjónustu að halda. Mín reynsla af slíku þverfaglegu samstarfi hefur leitt til hversdagslegra kraftaverka. Ég vil meira af því! Ég vil Fjölskyldusvið!

Ég treysti þér, Halldóra Fríða, oddviti Framsóknar til þess að leiða þetta verkefni. Þess vegna ætla ég að setja X við B í þetta skiptið!

Kynntu þér málið kæri kjósandi! Forystan okkar þetta kjörtímabil hefur gert góða hluti og ætlar sér að fylgja þeim eftir.

Jóhanna Helgadóttir
Deildarstjóri í leikskóla

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar