Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ  - 16 maí

Aðsent

Samvinna og gott samfélag
Föstudagur 15. maí 2026 kl. 21:55

Samvinna og gott samfélag

Það gleymist stundum að gott samfélag samanstendur ekki bara af íbúum heldur ekki síður starfsfólki þess. Saman myndum við frábært teymi.

Við í Vogum erum svo heppin að hér starfar framúrskarandi fólk sem heldur utanum rekstur og praktísk málefni en einnig fólk sem sinnir öðrum störfum sem eru okkur ekki síður mikilvæg.

Aðalbros
Aðalbros

Í skólunum okkar starfar fólk með metnað. Það  sinnir börnunum okkar hverjar sem þarfir þeirra eru. Reynt er eftir fremsta megni að búa hverju barni aðstæður sem það þarfnast. Til þess að skóli megi dafna þarf starfsfólk sem styður við skólastarfið. Þar erum við líka heppin.

Sjaldan hefur verið meira líf í kringum starfið í Íþróttamiðstöðinni. Þar vinnur fólk með metnað. Þar hafa verið unnin verk sem bæta upplifun notenda og eflt íbúa í heilsusamlegum lífsstíl. Þar býr Heilsubærinn Vogar.

Á umhverfis- og skipulagssviði hefur heldur betur verið tekið til hendinni. Fyrir nokkrum árum var ekki talin þörf á garðyrkjunálgun. Nú njótum við umhverfis með fallegum gróðri og grænum svæðum sem hlúð er að – þar er okkar núvitund.

Í þjónustumiðstöð er starfsfólk sem leitað er til með aðkallandi verkefni. Alltaf er einhver til staðar til að gera og græja. Þar er fólk með puttann á púlsinum.

Uppbyggingin er mikil í Vogum. Hún gerist ekki af sjálfu sér. Hér starfar teymi sem sinnir samskiptum við ótal aðila sem koma að málefnum húsbyggjenda. Vinnuhestar sem þekkja til og leiða starfið. Áður en byggt er þarf að skipuleggja og þar erum við sterk saman.

Á skrifstofunni vinnur fólk sem lætur verkin tala. Þar er reynsla og þar er vel haldið utanum mikilvægan hluta rekstursins. Ómissandi, svo samfélagið geti vaxið og dafnað.

Í Vogum er hlúð að eldri borgurum en líka ungmennum. Starfsstöðvarnar eru í Álfagerði og í Borunni. Þar er líf og fjör sem eftir er tekið. Aldrei hefur eins öflugt starf verið unnið á þessum starfsstöðvum og nú undanfarið. Þar vinna snillingar með stórt hjarta.

Það er ekki annað hægt en að enda þessa kosningabaráttu á því að hrósa starfsfólki Sveitarfélagsins Voga fyrir að halda öllum þessum boltum á lofti, styðja okkur í leik og starfi og hjálpa okkur að gera Vogana enn betri.

Fólkið okkar skiptir máli, án þeirra erum við lítið. Tryggjum að áfram verði valin manneskja í hverju rúmi. Tryggjum að stöðugleiki, festa og gleði líkt og hér er lýst að framan, einkenni áfram allar starfsstöðvar Voga. Setjum x við E á kjördegi.

Stórt TAKK öllsömul.

Birgir Örn Ólafsson

Eva Björk Jónsdóttir

Friðrik Valdimar Árnason

Bæjarfulltrúar E-listans í Sveitarfélaginu Vogum

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar