Jafntefli hjá Keflavík og Stjörnunni
Keflavík og Stjarnan skildu jöfn í leik liðanna í Bestu deild karla í knattspyrnu á HS Orku vellinum í Keflavík í kvöld. Lokatölur 1-1.
Keflvíkingar byrjuðu vel, voru mun hættulegri í og sköpuðu sér nokkur markfæri í fyrri hálfleik. Framherjinn Stefan Ljubicic fékk nokkur marktækfæri sem hann náði ekki að nýta. En á 41. mínútu uppskáru Keflvíkingar mark á 41. mínútu. Muhamed Alghoul skoraði inni í miðjum vítateig eftir sendingu frá Þorláki Breka hægra megin í teigum.
Stjörnumenn mættu hins vegar með látum eftir leikhlé og jöfnuðu eftir hornspyrnu á 49. mínútu.
Fleiri urðu mörkin ekki en síðari hálfleikur var jafnari þar sm bæði lið fengu tækifæri á sð koma boltnum í netið.
Keflvíkingar eru áfram í 7. sæti með átta stig, eins og ÍA sem vann sinn leik í dag.
Keflavík mætir Þór í næstu umferð.







