Grindvíkingar eru Íslandsmeistarar
Grindvíkingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta eftir magnaðan sigur á Tindastóli á Sauðárkróki í kvöld. Lokatölur 102-109 í leik sem Grindvíkingar leiddu allan tímann þrátt fyrir að vera án tveggja sinna bestu leikmanna, Ólafs Ólafssonar og Deandre Kane. Frammistaða hins fertuga Jeremy Pargo, fyrrverandi leikmanns úr NBA tryggði UMFG þennan sigur en hann skoraði 48 stig, þar af tíu þrista sem er met.
Heimamenn úr Tindastóli þjörmuðu að Grindvíkingum á lokamínútunum en lokakörfur frá Ragnari og Pargo kláruðu dæmið og UMFG tryggði sér sinn fjórða Íslandsmeistaratitil.
Minni spámenn Grindavíkur komu sterkir inn í þessum leik og í úrslitakeppninni. Það má ekki gleyma því að minnast á frammistöðu Jordans Semple sem var frábær í úrslitakeppnni og leiknum í kvöld.
„Deandre Kane er hjartað og sálin í þessu Grindavíkurliði. Sáuð þið hann á bekknum í kvöld? Við höfðum engu að tapa og höfðum fulla trú á því að við gætum unnið þennan fjórða leik þó hann væri á erfiðum útivelli,“ sagði Pargo m.a. í viðtali við Sýn eftir leik og þegar hann var þráspurður um það hvort hann kæmi aftur næsta tímabil sagðist hann ekki geta sagt af eða á.
Tindastóll-Grindavík 102-109 (19-31, 26-17, 27-36, 30-25)
Grindavík: Jeremy Raymon Pargo 48/8 fráköst/8 stoðsendingar, Jordan Semple 25/14 fráköst/8 stoðsendingar/3 varin skot, Ragnar Örn Bragason 14/4 fráköst, Arnór Tristan Helgason 11, Unnsteinn Rúnar Kárason 6, Kristófer Breki Gylfason 5, Patrekur Atlason 0, Alexander Veigar Þorvaldsson 0, Isaiah Coddon 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Valur Orri Valsson 0.
Tindastóll: Adomas Drungilas 26/5 fráköst, Taiwo Hassan Badmus 22/13 fráköst, Dedrick Deon Basile 20/4 fráköst/12 stoðsendingar, Davis Geks 13, Júlíus Orri Ágústsson 9, Sigtryggur Arnar Björnsson 5, Ragnar Ágústsson 5/7 fráköst, Daniel Dolenc 2, Víðir Elís Arnarsson 0, Viðar Ágústsson 0, Hannes Ingi Másson 0, Pétur Rúnar Birgisson 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Kristinn Óskarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson
Áhorfendur: 1653
Viðureign: 1-3

Jermy Pargo stýrði Grindvíkingum til sigurs í fjórða leiknum sem tryggði UMFG Íslandsmeistaratitilinn 2026.







