Íþróttir

HK tók stigin þrjú í Krónum
Þriðjudagur 19. maí 2026 kl. 10:18

HK tók stigin þrjú í Krónum

Það var boðið upp á talsverða atburðarás, rautt spjald og langa stöðvun vegna meiðsla þegar HK fékk Njarðvík í heimsókn í Lengjudeild karla í Kórnum. Þegar upp var staðið fögnuðu heimamenn 2-0 sigri í leik sem teygðist langt fram yfir venjulegan leiktíma.

Fjörugur fyrri hálfleikur en markalaus

Leikurinn fór líflega af stað og strax á fyrstu mínútu héldu HK-menn að þeir væru búnir að taka forystuna. Tumi Þorvarsson kom boltanum í netið en aðstoðardómarinn var fljótur að flagga hann rangstæðan.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Njarðvíkingar bitu hressilega frá sér þegar leið á hálfleikinn og fengu nokkur hættuleg færi. Á 33. mínútu munaði minnstu að gestirnir kæmust yfir; Alexander Helgi sendi boltann fyrir eftir flotta sókn, Ólafur Örn í marki HK varði frábærlega og Bragi Karl náði frákastinu en tókst ekki að stýra boltanum inn. Staðan var því markalaus í hálfleik.

HK refsaði og Njarðvík missti mann af velli

Síðari hálfleikur byrjaði af krafti og á 53. mínútu dró loksins til tíðinda. Tumi Þorvarsson brunaði upp vinstri vænginn og átti flotta sendingu á Dominik Radic sem þrumaði boltanum í netið.

Aðeins tólf mínútum síðar, á 65. mínútu, tvöfaldaði HK forystuna. Heimamenn fengu þá hornspyrnu, Atli Hrafn sendi boltann inn en Guy Smit, markvörður Njarðvíkur, kýldi hann út í teiginn. Þar var Aron Kristófer Lárusson fyrstur að átta sig og smellti boltanum í netið í gegnum mikla þvögu, 2-0.

Útlitið varð enn dekkra fyrir Njarðvík aðeins mínútu síðar, því á 66. mínútu fékk Arnleifur Hjörleifsson beint rautt spjald fyrir brot þar sem hann fór með fótinn of hátt í hnéð á leikmanni HK. Gestirnir voru því tveimur mörkum undir og manni færri.

Alvarleg meiðsli og löng bið eftir sjúkrabíl

Á 69. mínútu varð algjört hlé á leiknum þegar Jóhann Ægir Arnarsson, leikmaður Njarðvíkur, varð fyrir alvarlegum meiðslum. Strax sást að ekki var allt með felldu og var óttast að hnéskelin hefði farið úr lið.

Leikurinn var stöðvaður í rúmar tuttugu mínútur á meðan beðið var eftir sjúkrabíl.

Hitnaði í kolunum í uppbótartímanum

Vegn stöðvunarinnar var gríðarlegum uppbótartíma bætt við leikinn, sem stóð yfir í tæpar 124 mínútur í heildina.

Njarðvíkingar lögðu ekki árar í bát þrátt fyrir mótlætið og undir lokin fór að hitna í kolunum, sem endaði með því að Stefán Gísli Stefánsson fékk gult spjald á 118. mínútu. HK-menn fengu sömuleiðis færi til að bæta við, en Jóhann Þór átti meðal annars skot rétt yfir úr dauðafæri á 110. mínútu. Haraldur Smári Ingason bjargaði svo Njarðvík undir lokin með frábærri tæklingu í teignum.

Lengra komust liðin hins vegar ekki og HK sigldi 2-0 sigri í höfn í Kórnum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar