Mannlíf

Frábær Gosi í Frumleikhúsinu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 21. maí 2026 kl. 11:45

Frábær Gosi í Frumleikhúsinu

Söngleikurinn Gosi var frumsýndur í Frumleikhúsinu í Keflavík í gær en um er að ræða stórskemmtilega fjölskyldusýningu um trébrúðuna Gosa sem þráir að verða alvöru drengur. Á ferðalagi sínu lendir hann, ásamt vini sínum Tuma Engisprettu, í alls kyns ævintýrum, kynnist skrautlegum persónum og lærir mikilvægar lexíur um heiðarleika, hugrekki og vináttu.

Í söngleiknum um Gosa taka þátt tugir krakka og ungmenna undir stjórn Elmu Rúnar Kristinsdóttur, eiganda Ungleikhússins en hún er danshöfundur sýningarinnar. Með henni eru leikstjórnin Sigga Ósk og söngþjálfari er engin önnur en Diljá Pétursdóttir, söngkona og fyrrverandi fulltrúi Íslands á Eurovision. Um leikmynd sér Davíð Örn Óskarsson, Sigurður Bogi Ólafsson sér um lýsingu og leikgerfi eru í höndum Evu Bjargar Harðardóttur.

Sýningin er skemmtileg leikhúsupplifun fyrir alla fjölskylduna og hæfileikarnir þessu ungu leikara eru magnaðir.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Víkurfréttir fylgdust með sýningu í vikunni og þar voru viðstaddir þjóðleikhússtjóri og þekktir leikarar sem lofuðu sýninguna.

Næstu sýningar eru 22., 23. og 24. maí, 29. og 31. maí. Nánar á tix.is

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar