Mannlíf

Skáldaþing systurhátíð Skáldasuðs
Mánudagur 18. maí 2026 kl. 11:06

Skáldaþing systurhátíð Skáldasuðs

Skáldaþing systurhátíð ljóða- og listahátíðarinnar Skáldasuðs er haldin í fyrsta sinn á Egilsstöðum og Seyðisfirði þar sem reynd og ný skáld og aðrir listamenn koma saman í  samtali við áhorfendur og aðra gesti. Verkefnastjóri hátíðarinnar fyrir sunnan og hugmyndasmiður er Gunnhildur Þórðardóttir og fyrir austan Katla Rut Pétursdóttir.

Katla sá viðtal við Gunnhildi í fjölmiðlum, fannst hún stórflott kona og hafði samband við hana - ákvað að láta reyna á það hvort hátíðin gæti ekki verið líka sett upp fyrir austan. Katla Rut er menntuð leikkona, kvikmyndagerðarmaður og flugfreyja en einnig skáld. Hún starfar hjá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði og Gunnhildur er myndlistarmaður, kennari og skáld sem hefur haldið sýningar og upplestra víða um land og utan landsteinana.

Skáldaþing líkt og Skáldasuð er líka fyrir börn og ungmenni sem geta tekið þátt í sem skapandi einstaklingar en nemendur í grunnskóla Seyðisfjarðar hafa með umsjónarkennara samið ljóð sem verða sýnd á Vesturvegg Skaftfells.  Á hátíðinni verða einnig ljóð víða um bæinn; á göngustígum, í búðum og í sundlaugum Seyðisfjarðar og Egilsstaða.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Ljóðskáld á göngustígum, búðum og í sundlaugum fyrir utan nemendur eru; Vilborg Dagbjartsdóttir, Helen La Vikinga Halldórsdóttir, Gríma Kamban, Gunnhildur Þórðardóttir, Katla Rut Pétursdóttir, Guðbergur Bergsson, Ingunn Snædal, Jónas Reynir Gunnarsson, Sigurjón Bergþór Daðason, Philip Vogler, Skúli Björn Gunnarsson, Jón Knútur Ásmundsson og Una Björk Kjerúlf. Öll þessi skáld tengjast bæði svæðinu fyrir austan og Suðurnesjum.

Sýning Skáldasuðs, Heilun, hefur að þessu tilefni ferðast frá Duus Safnahúsum úr Reykjanesbæ austur og verður sýningin sett upp í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Sýningin inniheldur allt verk sem hafa texta að leiðarljósi, eru hugmyndir að ljóðverkum eða verk sem hafa heilun sem innblástur eða pólítíska skírskotun. Listamennirnir sem taka þátt eru Guðjón Ketilsson, Helgi Gíslason, Logi Bjarnason, Sandra Ólafsdóttir, Ethorio, Seweryn Chwala, Kristín Rúnarsdóttir, Sandra María Sigurðardóttir, Katla Rut Pétursdóttir, Gunnhildur Þórðardóttir, Þórarinn Ingi Jónsson, Stefán Bogi Sveinsson og Jón Knútur Ásmundsson en þeir tveir síðastnefndir munu einnig taka þátt í upplestri á opnun ásamt Gunnhildi.

Dagskrá Skáldaþings 20. – 31. maí
Ljóð í leiðinni, ljóð í lauginni stendur yfir alla hátíðina
20. maí kl. 8.30 – lesið í lauginni á Seyðisfirði örupplestrar ljóða (Gunnhildur)
20. maí kl. 16 - opnun ljóðamynda grunnskólabarna á Vesturvegg í Skaftfelli
21. maí kl. 10 – örupplestur ljóða í sundlaug Egilsstaða (Gunnhildur)
21. maí kl. 17– opnun sýningar í Sláturhúsinu og upplestur
22. maí – Útimyndlistarsýning Katla Rut Pétursdóttir Því húsin heyra
23. maí kl. 16 – Opnun Tvísöngs Ragnheiðar Hörpu Leifsdóttur
26. maí – hvað leynist á Vestdalseyri
28. maí – ljóð í lúgunni heimsending ljóða á Seyðisfirði
29. maí – ljóð í lúgunni heimsending ljóða á Egilsstöðum
30. maí – ljóðaganga með Skúla Birni Gunnarssyni í Trjásafninu
31. maí – sýningum og hátíð lýkur
Ókeypis inn á alla viðburði


Hátíðin er haldin í samstarfi við Skaftfell, Sláturhús menningarmiðstöð, Þjóðminjasafn Íslands og Tækniminjasafn Austurlands.

Hún er styrkt af Síldarvinnslunni, Menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðuneytinu, Bara Snilld, Alcoa og fékk hún einnig menningarstyrk frá Múlaþingi.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar