Mannlíf

SPREK heldur tónleika á bókasafni Suðurnesjabæjar
Mánudagur 18. maí 2026 kl. 09:15

SPREK heldur tónleika á bókasafni Suðurnesjabæjar

SPREK heldur tónleika á bókasafni Suðurnesjabæjar þann 20. maí. Gítarleikarinn Rúnar Þórisson hefur fengið til liðs við sig fyrrum félaga sína úr hljómsveitinni Dögg, þá Jóhann Þórisson bassaleikara og Nikulás Róbertsson hljómborðsleikara, og stofnað nýja hljómsveit, hljómsveitina S P R E K sem að auki skipa þeir Halldór Lárusson trommuleikari og Jens Hansson saxófónleikari.

Sveitin er því mönnuð reynsluboltum sem allir hafa sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf. Halldór hefur leikið með sveitum á borð við Júpíters, Bubba/MX-21, Fríðu Dís, Halli Ingólfssyni/Öræfi; Jens með Sálinni hans Jóns míns og Brimbrot; Jóhann með Dögg, Fjörefni og Paradís; Nikulás með Start, Paradís og Kikk; Rúnar með Grafík, Paradís og Ýr. Eins og nafn hljómsveitarinnar gefur til kynna er ætlunin að kveikja nýjan eld úr gömlum kvistum og láta tónlistina neista í ófyrirsjáanlegum áttum.

Aðalbros
Aðalbros

Nafnið dregur fram þann lífsþrótt og þá hráu orku sem verður til í gegnum flókna en þó aðgengilega hljóðheima þar sem dreymandi andrúmsloft og beittur taktur mætast á nýjum forsendum. Útkoman er kraftmikil og myndræn tónlist þar sem gítarinn og saxófónninn, með fulltingi hljómborða, bassa og tromma, leiða hlustandann. Í byrjun er unnið með áður útgefið efni Rúnars, bæði af sólóferli hans og með hljómsveitinni Grafík, auk annarra verka meðlima og einstaka sérvalinna tökulaga. Lögin birtast í nýjum instrumental progg-skotnum útfærslum þar sem engar málamiðlanir eru gerðar. Hér er það tónlistin sjálf í sinni tærustu mynd sem gildir, enda meðlimir búnir að vinna sér inn frelsið til að spila nákvæmlega það sem þeim sýnist, án þess að pæla í útvarpsspilun eða dægurfluguvinsældum. Því er það mikil tilhlökkun fyrir alla unnendur vandaðrar instrumental tónlistar að SPREK stígi nú fram á sjónarsviðið.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar