Mannlíf

Húsið Sjólyst opið í sumar
Laugardagur 23. maí 2026 kl. 06:03

Húsið Sjólyst opið í sumar

Húsið Sjólyst er nýlega endursmíðað hús sem stendur við Gerðavörina í Garðinum. Á því svæði var mest um að vera í Garðinum um aldir. Sjólyst var byggð 1890 og Una, oft nefnd völva Suðurnesja, bjó þar um sína daga. Bókasafn Garðmanna var í húsinu og rúmaðist þar vel þó að húsið væri ekki stórt. Húsið má vel vera fulltrúi fjölmargra áþekkra húsa á Suðurnesjum á sínum tíma sem fá ef nokkur standa enn.

Húsið er opið á laugardögum og sunnudögum kl. 14–17. Heitt á könnunni og nýbakaðar vöfflur á borðum. Gestum er boðið að koma, skoða húsið og setjast í eldhús Unu og rabba. Stundum eru sagðar sögur og ljúfar minningar verma. Þannig kviknar stundum stemning sem var þar löngum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Heimamenn eru gestgjafar hverju sinni. Oft var sest niður í ró hjá Unu og stundum kvikna samræður og notalegheit sem rifja upp það sem eitt sinn var.

Velkomin í Sjólyst í sumar.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar