32 milljónum króna úthlutað til 25 verkefna á Suðurnesjum
Aukaúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja 2026 lokið
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur lokið aukaúthlutun styrkja fyrir árið 2026. Alls bárust 34 umsóknir að heildarupphæð um 54 milljónir króna og samþykkti úthlutunarnefnd styrkveitingar til 25 verkefna. Heildarupphæð úthlutunar nemur 32 milljónum króna.
Í þessari aukaúthlutun var sérstök áhersla lögð á menningarviðburði, safnastarf, varðveislu menningararfs og verkefni tengd sólmyrkvanum sem verður 12. ágúst 2026. Sólmyrkvinn er einstakur viðburður sem skapar svæðinu sérstakt tækifæri til að efla fræðslu, menningu og upplifun fyrir bæði íbúa og gesti.
Í ávarpi sínu segir Logi Gunnarsson, verkefnastjóri Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja, að úthlutunin sé áþreifanleg áminning um þann kraft, sköpunargleði og frumkvæði sem búi í samfélaginu á Suðurnesjum. Hann bendir jafnframt á að valið hafi verið krefjandi en endurspegli vel þá fjölbreytni og hugmyndaauðgi sem einkennir umsækjendur á svæðinu.
„Að baki hverju verkefni liggur mikil vinna og trú á framtíð svæðisins. Reynslan hefur sýnt að fjármunir Uppbyggingarsjóðs skila sér margfalt til baka í formi lifandi menningarlífs og aukins sýnileika Suðurnesja,“ segir Logi í ávarpi sínu.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja og hefur það hlutverk að styðja við verkefni sem efla samfélag, menningu, nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu.
Styrkhöfum er óskað innilega til hamingju með úthlutunina og hlakkar SSS til að fylgjast með verkefnunum verða að veruleika á komandi misserum, segir í tilkynningu.
Yfirlit yfir styrkt verkefni
Hér að neðan er listi yfir þau verkefni sem hlutu stuðning ásamt stuttri lýsingu:
Verkefni tengd sólmyrkvanum 2026
Reykjanes jarðvangur – Almyrkvafræðsla fyrir grunnskóla (750.000 kr.): Gagnvirk og skemmtileg almyrkvafræðsla í grunnskólum á Suðurnesjum í tengslum við sólmyrkvann.
Daníel G. Hjálmtýsson – Sungið til sólarinnar (500.000 kr.): Ókeypis tónleikar og hugsanleg götuhátíð í Suðurnesjabæ þar sem Daníel og hljómsveit flytja frumsamin lög af væntanlegri plötu um almyrkvann.
Siglingafélagið Knörr – Sólmyrkvi á sjó (800.000 kr.): Einstakur róðra- og siglingaviðburður þar sem þátttakendur upplifa sólmyrkvann úti á sjó.
Samfélag fyrir öll – Landscape Myth (500.000 kr.): Samfélagslegt listaverk þar sem fólk á öllum aldri og af ólíkum þjóðernum býr til fatnað og listmuni innblásna af íslenskri goðafræði tengdri sólmyrkvanum. Verkefninu lýkur með opinberri göngu.
Reykjanesbær – Myrkvastund í Reykjanesbæ (1.750.000 kr.): Viðburðir í fjórum hverfum sveitarfélagsins þann 12. ágúst til að hvetja íbúa til að upplifa almyrkvann saman.
Jón R. Hilmarsson – Magical Sky Iceland: Sólmyrkvinn 2026 (600.000 kr.): Ljósmyndun og miðlun myndefnis til að fanga atburðinn og kynna svæðið á alþjóðavísu. Sýnd verður kvikmynd og frumsamið tónverk á Ljósanótt 2026.
Bókasafn Reykjanesbæjar – Sól, tungl og skuggar (400.000 kr.): Fræðsla fyrir fullorðna, barnaviðburður með skapandi smiðju og geimþema í sumarlestri í samstarfi við Bókasafn Suðurnesjabæjar.
Söfn, sýningar og söguleg varðveisla
Byggðasafnið á Garðskaga – Almyrkvi á sólu (200.000 kr.): Fræðslusýning á íslensku og ensku um almyrkva og sólkerfið, ætluð börnum og fullorðnum. Sýningin stendur frá maí og fram yfir sólmyrkvann.
Byggðasafnið á Garðskaga – Garðskagaviti frá 1897 (2.900.000 kr.): Miðar að því að opna gamla Garðskagavitann fyrir gestum og viðburðum og varðveita hann sem lifandi menningararf.
Listasafn Reykjanesbæjar – List í samtali: viðburðir og safneign (1.000.000 kr.): Tvíþætt verkefni sem annars vegar felur í sér jóga og stjörnuspekileiðsögn tengda sýningu Erlu Þórarinsdóttur og sólmyrkvanum, og hins vegar skráningu og sýningu á gjöf Aðalsteins Ingólfssonar.
Reykjanesbær (Byggðasafn) – Ljósmyndasafnið í röð og reglu (1.300.000 kr.): Ráðgjöf frá forverði varðandi umbúnað, flokkun og varðveisluskilyrði fyrir um eina milljón ljósmynda safnsins.
Minjafélag Vatnsleysustrandar – Skólahúsið Norðurkot (1.100.000 kr.): Viðhald og endurbætur á hinu sögulega skólahúsi á Kálfatjörn til að forða því og munum þess frá skemmdum.
Minjafélag Vatnsleysustrandar – Vélbáturinn Huginn (800.000 kr.): Viðhald og varðveisla á þriðja elsta plankabyggða báti landsins (smíðaður 1931), sem er friðaður og ómetanleg heimild um sjávarútvegssögu.
Heimildarmyndir og skráning sagnarfs
Dagrún Ósk Jónsdóttir – Saga, staður og minningar: kortlagning frásagna um lífið í Grindavík (2.000.000 kr.): Söfnun og varðveisla munnlegra frásagna um lífið í Grindavík, með áherslu á jarðhræringar og rýminguna. Skapar varanlegt gagnasafn.
Eiríkur Óli Dagbjartsson – Fiskanes heimildarmynd (2.500.000 kr.): Heimildarmynd um útgerðarfélagið Fiskanes hf. í Grindavík, sögu þess, rekstur og sjávarútveg í litlum bæ.
Dagný Maggýjar – Lífið á vellinum: munnlegur sagnararfur í hljóð og mynd (1.000.000 kr.): Söfnun og skráning á munnlegum heimildum um daglegt líf, samskipti og menningarleg áhrif veru hersins á varnarsvæðinu.
Heimir Freyr Hlöðversson – Raddir Grindavíkur (3.000.000 kr.): Söfnun 40–50 kvikmyndaðra viðtala við Grindvíkinga um jarðhræringarnar og neyðarrýminguna til að skapa lifandi heimild og styrkja menningarlegt minni.
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir – Grindavíkurhúsin: varðveisla niðurrifshúsa (3.000.000 kr.): Kerfisbundin skráning og ljósmyndun á húsum í Grindavík sem eru í hættu á niðurrifi vegna náttúruhamfara.
Hilmar Bragi Bárðarson – Ár í Miðhúsum: Heimildarmynd (1.000.000 kr.): Heimildarmynd sem fjallar um bræður úr stórum systkinahópi sem halda úti frístundabúskap, sýnir sauðburð, heyskap og heimaslátrun.
Menningararfur, námskeið og samfélag
Áki Ásgeirsson – Strandmenningarmiðstöð: kynning og fræðslufundir (400.000 kr.): Fræðslukvöld og viðburðir sem tengjast sjávartengdum menningararfi og strandmenningu svæðisins.
Helga S. Ingimundardóttir – Prestsvarða, lagning gangstígs (2.000.000 kr.): Gerð göngustígs upp að Prestsvörðunni í Leiru til að bæta upplifun gesta á sögulegum slóðum.
Steinbogi ehf. – Tímaþræðir (500.000 kr.): Sköpun og miðlun efnis um sögu og menningu í Garði þar sem samtíð og fortíð eru tengdar saman ásamt því að bæta aðgengi að ljósmynda- og kvikmyndasafni.
Sveinn Enok Jóhannsson – Fornverk í Höfnum (1.600.000 kr.): Gjaldfrjáls námskeið fyrir ungmenni á Suðurnesjum þar sem þau læra hefðbundna grjóthleðslu og taka þátt í að endurhlaða gamla garða og tóftir í Höfnum.
Minja- og sögufélag Grindavíkur – Uppbygging á fiskverkunarhúsinu Kreppu (2.500.000 kr.): Heildarendurbætur, einangrun og endurnýjun innviða á sögulega húsinu Kreppu (byggt u.þ.b. 1930) til að gera það nothæft fyrir menningarstarf.
Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Voga – Lifandi menning og minjar (1.100.000 kr.): Efling menningarlífs í Vogum með fjölbreyttri starfsemi, þátttöku íbúa, og kortlagningu og miðlun menningarminja í sveitarfélaginu.







