Skólameistari FS: Tvö nöfn í pottinum
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust þrjár umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja en einn dró umsókn sína til baka.
Umsækjendur:
- Guðlaug Málfríður Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari
- Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, sviðsstjóri
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 29. apríl síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 18. maí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.






