Fréttir

Forseti Íslands opnaði nýtt leikjaforrit sem undirbýr læsi og íslenskan framburð
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur.
Fimmtudagur 21. maí 2026 kl. 07:51

Forseti Íslands opnaði nýtt leikjaforrit sem undirbýr læsi og íslenskan framburð

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, opnaði vefleikinn Froskaleikur - Skólameistarinn Í Klébergsskóla á Kjalarnesi á dögunum.

Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur hjá Raddlist í Reykjanesbæ þróaði Froskaleikinn með áherslu á að leggja sterkan grunn að læsi tengt framburði og hljóðaleik frá fyrstu árum barna. „Fjölbreytt og vönduð verkefni sem stuðla að læsi fyrir íslensk börn eru mikilvæg og Froskaleikurinn er sterkt innlegg í þá flóru” segir Bryndís.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Froskaleikurinn segir frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Verkefni barnanna í leiknum er að hjálpa Hoppa froski að fá málið aftur. Til þess æfa þau íslensku málhljóðin í erfiðleikaröð máltökunnar (byrjað á auðveldustu hljóðunum) þar til börnin komast í galdrakastalann og finna lausnina. Öll hljóðaborðin eru með gagnvirkum leikjum í hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. Allt þættir sem undirbúa læsi. Með stuðningi og samstarfi við styrktaraðila er leikurinn nú opinn og ókeypis á öllum tækjum. Uppbyggingarsjóður Suðurnesja og skólasamfélagið á Suðurnesjum hefur tekið mikilvægan þátt í stuðningi við verkefni Bryndísar og Raddlistar í áraraðir. Í Froskaleiknum eru alíslenskar teikningar og faglegt efni, góðar hljóðupptökur og skemmtilegt þemalag um Hoppa frosk. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér Froskaleikinn og hjálpa börnum sínum að undirbúa læsi. Leikurinn er hér: https://froskaleikur.laerumogleikum.is/

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar