Fréttir

Boranir hafnar við Kleifarvatn og fyrsta holan afkastaprófuð
Fimmtudagur 21. maí 2026 kl. 14:34

Boranir hafnar við Kleifarvatn og fyrsta holan afkastaprófuð

Jarðvegsvinna er hafin hjá HS Orku við nýtt borplan á Krýsuvíkursvæðinu norður af Bleikhól, skammt frá Kleifarvatni, en Hafnarfjarðarbær hefur samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir tveimur nýjum rannsóknarborholum. Með því að bora tvær holur á sama borteigi og nýta stefnuborun er hægt að rannsaka stærra svæði og lágmarka umhverfisrask. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku.

Ellert Skúlason ehf. sér um jarðvegsvinnuna, Strendingur ehf. um verkeftirlit og Jarðboranir munu sjá um boranirnar sem áætlað er að hefjast um mitt sumar.

Samhliða þessu hefjast í næstu viku afkastaprófanir á fyrstu djúpu rannsóknarholunni við Sveifluháls, sem boruð var síðasta sumar. Holan verður opnuð til að meta magn gufu og vökva, þrýsting og efnasamsetningu jarðhitavökvans. Þessum svokallaða blæstri getur fylgt nokkur hávaði og sýnilegir gufubólstrar í allt að átta vikur.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Mikilvægt öryggismál fyrir höfuðborgarsvæðið

Rannsóknunum er ætlað að sýna fram á nýtingarmöguleika jarðvarma á Krýsuvíkursvæðinu til heitavatnsframleiðslu og raforkuframleiðslu. Jarðvarmaver á svæðinu yrði þjóðhagslega mikilvægur innviður sem myndi auka afhendingaröryggi orku á þéttbýlasta svæði landsins.

Jarðhitarannsóknir í Krýsuvík eiga sér langa sögu og hófust strax árið 1756. Svæðið er að stærstum hluta í nýtingarflokki rammaáætlunar. Í kjölfar fárviðris í desember 2019 skilgreindi átakshópur stjórnvalda Krýsuvík sem sérstaklega mikilvægt svæði vegna öryggis hitaveitu á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, undir formerkjum almannahagsmuna og þjóðaröryggis.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar