Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Fréttir

Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 22. maí 2026 kl. 10:29

Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. 

Hlévangi var lokað um síðustu áramót þegar nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu fyrir 80 íbúa var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ. Fljótlega var farið að skoða kosti þess að opna Hlévang tímabundið að nýju, ekki síst til að bregðast við alvarlegri stöðu á bráðamóttöku Landspítala. Ljóst var að ráðast þyrfti í töluverðar endurbætur á húsnæðinu til að mæta betur þörfum íbúa og starfsfólks, segir í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Húsnæði Hlévangs er í eigu Reykjanesbæjar. Samningar hafa tekist milli sveitarfélagsins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um leigu á húsnæðinu til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Heilbrigðisráðuneytið útvegar tæki og búnað og fjármagnar reksturinn sem verður á hendi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Raunfjölgun um 124 skammtímahjúkrunarrými á þessu ári

Dvöl einstaklinga með færni- og heilsumat sem útskrifast af Landspítala í skammtímahjúkrunarrými er tímabundin þar til þeim býðst hjúkrunarheimili þar sem viðkomandi hafa óskað eftir varanlegri búsetu. Með þessu móti er unnt að bjóða þessum einstaklingum aðbúnað og þjónustu sem uppfyllir allar sömu kröfur og rekstur almennra hjúkrunarheimila, í stað langtímalegu á deildum spítalans þar sem er hvorki pláss né aðstæður til að mæta þörfum þeirra.

Þegar Urðarhvarf var opnað í mars var lokað tímabundið 45 skammtímahjúkrunarrýmum á Vífilsstöðum. Þau verða opnuð á ný í júní eftir endurbætur á húsnæðinu. Þegar öll rými í Urðarhvarfi, á Vífilsstöðum og á Hlévangi verða komin í notkun í haust verður Landspítali kominn með samtals 169 rými til ráðstöfunar en raunfjölgun á árinu nemur 124 rýmum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar