Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn lang stærstur í skuggakosningum ungmenna
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 22. maí 2026 kl. 10:12

Sjálfstæðisflokkurinn lang stærstur í skuggakosningum ungmenna

Sjálfstæðisflokkurinn fékk lang flest atkvæði í skuggakosningum Ungmennaráðs Reykjanesbæjar, Samfylking fékk næst flest og Framsókn í þriðja sæti.

Skuggakosningar fóru fram hjá nemendum í 8.-10. bekk í öllum sjö grunnskólum Reykjanesbæjar vikuna 11.-15. maí. Verkefnið var skipulagt og unnið af Ungmennaráði Reykjanesbæjar með það að markmiði að auka áhuga ungmenna á lýðræði, kosningum og samfélagsmálum.Alls tóku 645 ungmenni þátt í kosningunum. Nemendur fengu tækifæri til að kynna sér framboð, ræða málefni og upplifa hvernig kosningar fara fram í raunverulegu samfélagi.

Kosningarnar voru framkvæmdar með svipuðum hætti og hefðbundnar kosningar þar sem nemendur kusu á kjörstað innan sinna skóla.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ungmennaráði Reykjanesbæjar sem vill þakka öllum skólunum, starfsfólki og nemendum kærlega fyrir samstarfið og þátttökuna í verkefninu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar