Viðskipti

United Airlines hefur flug milli Keflavíkur og Washington D.C.
Föstudagur 22. maí 2026 kl. 13:57

United Airlines hefur flug milli Keflavíkur og Washington D.C.

United Airlines hóf í dag beint flug til Keflavíkurflugvallar frá Washington D.C. og var af því tilefni tekið vel á móti farþegum við komuna til Keflavíkurflugvallar. Í sumar mun United Airlines fljúga daglega á milli KEF og Dulles flugvallar sem fjölgar valkostum ferðalanga, bæði hvað varðar þægindi og flugtengingar.

„Það er mjög ánægjulegt að taka á móti fyrstu farþegum United Airlines frá Washington,“ segir Bjarni Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar á Keflavíkurflugvelli. „United Airlines er mikilvægur samstarfsaðili og við hlökkum til að sjá áframhaldandi samstarf okkar styrkjast og vaxa á komandi árum. Sú ákvörðun að bæta Washington við sem nýjum áfangastað, samhliða Newark/New York og Chicago, endurspeglar traust United Airlines á Íslandi sem eftirsóttum áfangastað og undirstrikar vaxandi eftirspurn eftir ferðum til og frá landinu.“



United Airlines hefur flogið til Keflavíkurflugvallar frá árinu 2018 og mun í sumar einnig fljúga daglega frá tveimur öðrum flugvöllum, Newark/New York og Chicago O'Hare.

„Við erum afar spennt að hefja okkar fyrstu flug milli Keflavíkur og Washington D.C., sem undirstrikar enn frekar mikilvægi Íslands innan alþjóðlegs leiðakerfis United," segir Amit Badiani, yfirmaður sölu fyrir Afríku og Evrópu utan leiðakerfis hjá United Airlines. „Sumarið 2026 munu viðskiptavinir okkar á Íslandi njóta enn fjölbreyttari ferðamöguleika og greiðra tenginga til yfir 50 áfangastaða í Ameríku í gegnum tengistöð okkar í Washington D.C. Þá munu bandarískir ferðalangar einnig fá fleiri möguleika til að ferðast til Íslands og upplifa náttúrufegurð landsins, þar á meðal Bláa lónið, miðnætursólina, svartar sandstrendur og fleira."



United Airlines mun fljúga daglega til og frá Keflavíkurflugvelli (KEF) til Washington Dulles International Airport (IAD) fram til 23. september. Komutími samkvæmt flugáætlun er 8:30 og brottfarartími 11:30.

Washington Dulles International Airport (IAD) er einn mikilvægasti tengiflugvöllur austurstrandar Bandaríkjanna og lykilmiðstöð fyrir millilandaflug. United Airlines er stærsta flugfélag vallarins og flýgur þaðan til yfir 50 áfangastaða innan Bandaríkjanna sem og til Mið- og Suður-Ameríku.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar