Villi pulsa kveður eftir rúm 46 ár og býður í pulsupartý
Í tilefni af því að Villi pulsa, Vilberg Skúlason, hefur ákveðið að selja reksturinn og hefja nýjan kafla verður alvöru kveðju pulsupartý sunnudaginn 31. maí kl. 14-16.
Í gegnum árin hefur pulsuvagninn verið fastur punktur í lífi bæjarbúa þar sem ótal samtöl, hlýjar móttökur, hlátur og góðar stundir hafa átt sér stað. Af því tilefni ætla Villi og Inga að efna til veislu og þakka bæjarbúum fyrir allan stuðninginn, tryggðina og gleðina sem þau hafa fengið að upplifa í gegnum árin.
Inga Hildur mun halda rekstrinum áfram en hún hefur staðið vaktina með Villa síðastliðin 20 ár og tekur því við með mikla reynslu og kærleika til staðarins og viðskiptavinanna.
Veisla við Pulsuvagninn
Veislan verður við pulsuvagninn sunnudaginn 31. maí kl. 14:00-16:00. Boðið verður upp á pulsur og drykki á meðan birgðir endast. Allir hjartanlega velkomnir og Villi og Inga vonast til að sjá sem flesta til að fagna saman þessum merku tímamótum.
Villi og Inga þakka innilega fyrir öll árin, góða samveru og þann hlýhug sem bæjarbúar hafa sýnt þeim í gegnum tíðina.
Sérstakar þakkir fá Coca-Cola á Íslandi, Myllan og SS pulsur fyrir þeirra framlag til hátíðarinnar.







