Minningarstund um Björn Einarsson í Keflavík
Minningarstund var haldin 22. maí sl. í Blue höllinni í Keflavík um Björn Einarsson, íþróttamann og þjálfara hjá Keflavík og fleiri félögum en hann lést 17. mars sl. og varð jarðsettur 30. apríl.
Nokkrir Keflvíkingar fluttu ræðu á minningarstundinni, ættingjar og vinir Björns.
Anna María Ævarsdóttir, systurdóttir Björns skrifaði þetta um frænda sinn fyrir minningarstundina og gaf VF leyfi að birta hana:
Elsku Bjössi okkar lést þann 17. mars og var jarðsettur 30. apríl.
Við viljum heiðra minningu hans og hittast saman í íþróttahúsinu í Keflavík, föstudaginn 22. maí.
Körfubolti átti hug hans allan og var hann stór hluti af körfuboltafjölskyldunni á Íslandi.
Hann var sjálfur yfirburðar körfuboltamaður og átti ófáar körfurnar langt fyrir utan 3ja stiga línuna á Sunnubrautinni.
Björn lék alla sína yngri flokka með Keflavík, fór svo á unglingsárum yfir til að leika í úrvalsdeild fyrir Hauka í Hafnarfirði, ÍA á Akranesi og Tindastól á Sauðárkróki.
Þrátt fyrir að vera mikill Keflvíkingur, þá átti hann stóran þátt í uppbyggingu körfuboltans um land allt. Þar ber helst að nefna ÍBV í Vestmannaeyjum og Þrótt í Vogum. Einnig var hann þjálfari Hattar á Egilsstöðum. Í þessum liðum var hann allt í öllu í unglingastarfinu og lék einnig sem spilandi þjálfari í meistaraflokkum. Hann átti sérstaklega þátt í því að móta marga unga einstaklinga innan körfunnar, þar sem ástríða hans skein í gegnum körfuboltann.
Björn var gríðarlegur íþróttamaður, þeir sem þekktu hann minntust hans sem mikils „Poolara“ og var lofsöngur þeirra í miklu uppáhaldi. Hann gekk jafnframt undir viðurnefninu Kobe Einars, vegna aðdáunar sinnar á Kobe Bryant.
Hvert sem Bjössi Einars fór, var hann alltaf hrókur alls fagnaðar og vinur vina sinna.












