Mannlíf

Sossa sýnir í Billund í Danmörku
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 31. maí 2026 kl. 16:55

Sossa sýnir í Billund í Danmörku

Sossa Björnsdóttir myndlistarkona úr Keflavík opnaði í gær ásamt Guðrúnu Veru sýningu í Gallerí Sam í Billund í Danmörku.

Guðrun Vera sýnir leirskúlptura og Sossa málverk. Sýningin sem ber titilinn „Venus í kaos“ er samtal á milli listamannanna um tilveru kvenna i kaotískum heimi.

Sýningin stendur til 28. juní.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar