Topplið Breiðablik skoraði fimm í sigi á Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík tapaði fyrir toppliði Breiðabliks í Bestu deild kvenna á JBÓ vellinum í Njarðvík í dag. Grænklæddar Blikakonur skoruðu fimm mörk gegn engu heimakvenna.
Gestirnir úr Breiðabliki komust á blað strax á fyrstu mínútu leiksins og óhætt er að segja að það hafi verið gjafamark. Lauren Kellett markvörður UMFG/UMFN varð fyrir því óhappi að hrasa þegar hún ætlaði að sparka boltanum upp völlinn en hann endaði fyrir fætur Blikakonu sem sendi hann í autt markið.
Blikakonur skoruðu aftur korteri síðar og leiddu 0:2 í hálfleik.
Heimakonur áttu fín marktækifæri síðasta korterið í fyrri hálfleik án þess að ná að klára dæmið. Sama var uppi á teningnum í upphafi síðari hálfleik. Þær voru ógnandi og Emma Nicole fékk tvö góð tækifæri til að skora en tókst ekki. Blikakonur skoruðu þriðja markið á 51. mínútu, og síðan á 64. og 67. mínútu og tryggðu sér sanngjarnan sigur. Þær voru betra liðið, eru með meiri gæði en heimakonur í G-N áttu fínustu færi sem þær nýttu ekki.
Það var sérstakt að sjá lið andstæðinganna í fagurgrænum búningum en þetta var í fyrsta skipti sem það gerist á JBÓ vellinum í Njarðvík. Lið UMFG/UMFN er með hvítan aðalbúning og bleikan varabúning.
Liðið er með 8 stig, hefur unnið tvo, gert tvö jafntefli og tapað þremur leikjum og er um miðja Bestu deild.






