Fyrsta tap Grindavíkur staðreynd
Afturelding varð fyrsta liðið til að leggja Grindavík að velli í Lengjudeildinni á þessu tímabili þegar liðin mættust í hörkuleik á Stakkavíkurvellinum í Grindavík í kvöld. Mosfellingar fóru heim með öll þrjú stigin eftir 1–3 sigur.
Gestirnir úr Mosfellsbæ byrjuðu leikinn af krafti og uppskáru fyrsta markið á 20. mínútu. Boltinn hrökk þá af varnarmanni Grindavíkur og beint fyrir fætur Joacim Holtan sem skoraði af stuttu færi.
Heimamenn sóttu í sig veðrið eftir markið og fengu fín tækifæri til að jafna, en það voru gestirnir sem áttu síðasta orðið í fyrri hálfleik. Á lokasekúndunum fékk Afturelding hornspyrnu og eftir mikinn darraðardans í teignum skoraði Aron Elí Sævarsson af miklu öryggi. Staðan 0–2 í hálfleik.
Grindvísk von sem slokknaði fljótt
Grindvíkingar mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik. Á 56. mínútu minnkaði Rafael Victor muninn í 1–2 með frábærum skalla eftir fyrirgjöf frá Christian Bjarma Alexandersson og hleypti mikilli spennu í leikinn.
Sú spenna stóð þó stutt yfir því aðeins sex mínútum síðar áttu sér stað dýrkeypt mistök í vörn Grindavíkur. Heiðar Snær átti þá misheppnaða sendingu til baka á Blakala í markinu, Óðinn Bjarkason komst inn í sendinguna og refsaði grimmilega með því að koma Aftureldingu í 1–3.
Blakala kom í veg fyrir stærra tap
Eftir þriðja markið sótti Afturelding stíft og munaði oft litlu að þeir bættu við mörkum. Boltinn hafnaði meðal annars í stönginni og Enes Þór klúðraði dauðafæri. Blakala, markvörður Grindavíkur, átti stórleik á lokakaflanum og sá til þess að tölurnar yrðu ekki stærri.
Lokatölur 1–3 og fyrsti ósigur Grindavíkur í deildinni staðreynd eftir virkilega fjörugan og skemmtilegan leik.








