Íþróttir

Deans setti nýtt unglingamet í 100 metra skriðsundi í London
Denas Kazulis, sundmaður úr ÍRB
Miðvikudagur 27. maí 2026 kl. 09:30

Deans setti nýtt unglingamet í 100 metra skriðsundi í London

Denas Kazulis, sundmaður úr ÍRB setti nýtt unglingamet í 100 metra skriðsundi á AP Race sundmótinu í London í vikunni en fjórir sundmenn úr félaginu voru meðal keppenda og stóðu sig vel.

Í undanrásum syntu Fannar Snævar 50m flugsund, Eva Margrét 200m fjórsund og Denas Kazulis sem kórónaði síðan glæsilega frammistöðu sína á mótinu með því að setja nýtt unglingamet í 100 metra skriðsundi. Metið hafði staðið óhaggað frá árinu 1999 og var í eigu Arnar Arnarssonar, eins fremsta sundmanns í sögu íslensks sunds. Unglingametið miðast við 18 ára og yngri og Denas er 18 ára og gríðarlegt efni.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í síðasta hluta AP race synti Guðmundur Leo Rafnsson í b-úrslitum í 100m baksundi þar sem hann synti hraðar en í undanrásunum og endaði 7. í riðlinum. Rúmlega klst. síðar þá var hann aftur mættur í Super Finals í boðsund þar sem hann synti baksundslegginn með fjórsundssveit Íslands. Þá synti enn hraðar og alveg við sinn besta tíma. Sveitin stóð sig sérlega vel og hafnaði í 6. sæti eingöngu sekúndu frá Íslandsmetinu þeirra síðan á Smáþjóðaleikunum í Andorra síðastliðið vor. Var þetta lokakaflinn á þessu gríðarlega sterka móti.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar