Tónlistarskóli RNB skólaslit
Tónlistarskóli RNB skólaslit

Fréttir

Meirihlutasamstarf S og D undirritað í Suðurnesjabæ
Þriðjudagur 26. maí 2026 kl. 21:11

Meirihlutasamstarf S og D undirritað í Suðurnesjabæ

Bæjarfulltrúar S-lista, Samfylkingar og óháðra og D- lista, Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa komist að samkomulagi um samstarf kjörtímabilið 2026-2030. Samkomulagið sem byggir á stefnuskrám beggja framboða var undirritað af  kjörnum fulltrúum þriðjudaginn 26. maí í Samkomuhúsinu í Sandgerði. 

Áður en samkomulagið var undirritað tóku oddvitar beggja framboða, Svavar Grétarsson, S-lista og Haukur Andreasson, D-lista, til máls og tóku meðal annars fram að í samkomulaginu sé áhersla lögð á að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar, lækka álögur á íbúa, bæta lífsgæði allra íbúameð það að leiðarljósi að móta samfélag fyrir alla. Þá verður áframhaldandi vinna lögð í sameiningu byggðakjarnanna tveggja í Suðurnesjabæ eftir sameiningu árið 2018. Þá verður sérstök áhersla lögð á að hefja uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar, málefni barnafólks, fatlaðra og eldri borgara. Oddvitarnir tóku báðir fram að þeir vilji leggja áherslu á gott samstarf allra bæjarfulltrúa á kjörtímabilinu og munu leggja áherslu á gott upplýsingaflæðimeð það að leiðarljósi að allar áætlanir og eftirfylgni verði með sem besta móti. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Þá var tekið fram að tvö af fyrstu verkefnum nýrrar bæjarstjórnar verði að undirbúa fyrsta fund sinn sem er áætlaður 3. júní og að  auglýsa stöðu bæjarstjóra en farið verður í þá vinnu strax á næstu dögum.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar