Formlegar meirihlutaviðræður hafnar í Vogum
Formlegar meirihlutaviðræður eru hafnar í Sveitarfélaginu Vogum á milli D listans, E listans og L listans.
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Vogum urðu eftirfarandi:
A-listi, Fyrir samfélagið hlaut 223 atkvæði og tvo bæjarfulltrúa
D-listi, Sjálfstæðisflokksins og óháðra hlaut 333 atkvæði og þrjá bæjarfulltrúa
E-listi, Framboðsfélags E-listans hlaut 172 atkvæði og einn bæjarfulltrúa
L-listi, Framfarafélags L-listans hlaut 125 atkvæði og einn bæjarfulltrúa
Bæjarfulltrúar næstu fjögur árin verða:
Björg Ásta Þórðardóttir D-lista
Gunnar J. Helgason A-lista
Birgir Örn Ólafsson E-lista
Guðmann Rúnar Lúðvíksson D-lista
Kristinn Björgvinsson L-lista
Áslaug Fjóla Magnúsdóttir A-lista
Hulda Birna Helgadóttir Blöndal D-lista







