Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Íþróttir

Völsungur lagði Keflavík á Húsavík
Það er ekki á hverjum degi sem systur leika saman í leik. Hvað þá þrjú pör af systrum eins og raunin var hjá Keflvíkingum á Húsavík. Þetta eru þær tvíburasystur Eva Lind og Anita Lind Daníelsdætur, María Rán og Rakel Inga Ágústsdætur og tvíburasysturnar Anna og Brynja Arnarsdætur en þær voru allar í byrjunarliðinu gegn Völsungi.
Þriðjudagur 26. maí 2026 kl. 18:22

Völsungur lagði Keflavík á Húsavík

Keflavík mátti þola 3–1 tap gegn Völsungi þegar liðin mættust á GPG-vellinum á Húsavík í gær. Leikurinn var hluti af 4. umferð Lengjudeildar kvenna.

Heimakonur í Völsungi náðu fljótt forystunni en Keflvíkingar voru fljótir að svara:

• 9. mínúta: Ragnheiður Sara Steindórsdóttir kom Völsungi yfir strax í upphafi leiks.

• 13. mínúta: Aníta Bergrán Eyjólfsdóttir jafnaði metin fyrir Keflavík aðeins fjórum mínútum síðar.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Staðan var 1–1 í hálfleik en Völsungur reyndist sterkari í þeim síðari og tryggði sér sigurinn:

• 65. mínúta: Maria Fernanda Contreras Munoz kom heimakonum aftur yfir.

• 76. mínúta: Hildur Arna Ágústsdóttir innsiglaði 3–1 sigur Völsungs með þriðja marki liðsins.

Stigin þrjú urðu eftir á Húsavík og fer Keflavík stigalaust suður.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar