Íþróttir

Arnór Daði tekur við Keflavíkurkonum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 24. maí 2026 kl. 12:03

Arnór Daði tekur við Keflavíkurkonum

Arnór Daði Jónsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari kvennaliðs Keflavíkur í Bónus deildinni í körfubolta. Arnór Daði var aðstoðarþjálfari hjá liðinu í vetur en Hörður Axel Vilhjálmsson aðal þjálfari. Ungi maðurinn tekur nú við sem aðal þjálfari.

Arnór er Keflvíkingur og hefur til fjölda ára þjálfað yngri flokka félagsins. Arnór er sonur Jóns Halldórs Eðvaldsson sem þjálfaði Keflavíkurliðið til margra ára með góðum árangri.

Keflavík varð bikarmeistari á nýafstöðnum tímabili í Bónus deildinni en tapaði fyrir Haukum í undanúrslitum deildarkeppninnar.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar