Góð frammistaða Keflvíkinganna í Luxembourg
Eftir langan og strangan dag á Luxembourg Open í taekwondo standa Keflvíkingar uppi með tvo verðlaunahafa. Heiða Dís Helgadóttir og Viktor Berg Stefánsson unnu til verðlauna.
Magnús Máni Guðmundsson reið á vaðið og vann fyrsta bardaga örugglega gegn keppanda frá Sviss. Því næst keppti hann við heimamann sem er í 5. sæti Evrópulistans í hans flokki. Magnús var hársbreidd frá sigri í báðum lotum en þurfti að játa sig sigraðan.
Heiða Dís Helgadóttir sigraði fyrsta bardagann örugglega gegn þýskum keppanda og í úrslitum keppti hún við aðra sterka stelpu frá Þýskalandi. Bardaginn var fram og tilbaka en að lokum sigraði sú þýska og Heiða endaði með silfur.
Viktor Berg Stefánason stóð sig manna best en hann vann fjóra bardaga gegn öflugum andstæðingum fra Belgíu, Sviss og Þýskalandi. Eftir langan og erfiðan dag vann hann til gullverðlauna. Viktor stóð sig frábærlega og var sterkur í öllum sínum bardögum.
Heiða Dís og Viktor stefna svo á annað sterkt mót í Búlagaríu næstu helgi.







