Súrt jafntefli í Njarðvík
Það má segja að Grindavík/Njarðvík hafi verið rænt sigrinum þegar Stjarnan skoraði jöfnunarmark í uppbótartíma á JBÓ vellinum í Njarðvík í kvöld þegar liðin áttust við í Bestu deild kvenna í knattspyrnu.
Liðin skiptu á milli sín stigunum eftir að leiknum lauk með 1–1 jafntefli, þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunum. Súrt fyrir Grindavík/Njarðvík sem er á mikilli siglingu bæði í deild og bikar.
Heimakonur mættu ákveðnar til leiks og þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta markinu. Á 10. mínútu leiksins braust liðið upp vinstri vænginn og eftir nokkurn usla í vítateignum náði Lily Anna Farkas að koma skoti á markið sem endaði í netinu. Eftir fjöruga byrjun hægðist aðeins á leiknum og leiddu heimakonur verðskuldað í hálfleik.
Í síðari hálfleik mætti Stjarnan ákveðnari til leiks og leitaði jöfnunarmarksins af krafti. Þær fengu nokkur tækifæri og skoruðu meðal annars mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Vörn Grindavíkur/Njarðvíkur og Lauren Kellett í markinu héldu aftur af þeim allt þar til í uppbótartíma.
Á 91. mínútu barst boltinn út fyrir teig eftir hornspyrnu Stjörnunnar. Þar tók Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir við boltanum og skaut rakleitt í fjærhornið.
Heimakonur fengu hálffæri í blálokin en Stjarnan varðist vel og lokatölur urðu 1–1 jafntefli.







