Fréttir

Minnast tveggja Suðurnesjamanna sem fórust við Hornafjarðarós
Föstudagur 29. maí 2026 kl. 09:56

Minnast tveggja Suðurnesjamanna sem fórust við Hornafjarðarós

Þann 28. október árið 1991 varð hörmulegt slys við Hornafjarðarós þegar skólabáturinn Mímir RE 3 fórst. Sjö manna áhöfn var um borð, fimm drengir ásamt skipstjóra og vélstjóra.

Drengirnir fimm komust lífs af en Þórður Örn Karlsson skipstjóri og Bjarni Jóhannsson vélstjóri létust, þeir voru báðir frá Suðurnesjum. Bjarni fannst skömmu eftir slysið en mikil leit var gerð að Þórði sem á þessum tíma var nýkjörinn forseti Kiwanisklúbbsins Keilis. Félagar frá Kiwanisklúbbnum ásamt félögum úr björgunarsveitinni Stakk fjölmenntu austur til að aðstoða við leit, tveimur vikum síðar fannst Þórður.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Í september verður næsta umdæmisþing Kiwanisumdæmisins Ísland – Færeyjar haldið á Höfn í Hornafirði og eru þá 35 ár liðin frá slysinu. Í tilefni af þessum tímamótum hefur Kiwanisklúbburinn Keilir ákveðið að gefa Sveitarfélaginu Hornafirði forláta bekk úr graníti sem minnisvarða um þá Suðurnesjamenn sem fórust.

Bekkurinn er kominn á sinn stað í Óslandi og verður vígður seinnipart föstudags 11. september 2026 á umdæmisþinginu.

Kiwanisklúbburinn Keilir vill þakka bæjaryfirvöldum á Hornafirði fyrir að taka vel í hugmyndina og libra þjónustu.

Jóhannes Sigvaldason forseti Kiwanisklúbbsins Keilis segist í tilkynningu vilja fyrir hönd Keilis þakka bæjaryfirvöldum á Hornafirði fyrir að taka vel í hugmyndina og libra þjónustu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar