Skipulagsbreytingar í höfuðsstöðvum Bláa Lónsins
Starfsmönnum Bláa Lónsins voru í dag kynntar skipulagsbreytingar í höfuðsstöðvum félagsins. Breytingarnar fela það í sér að 29 stöðugildi verða lögð niður, 55 starfsmenn flytjast á milli sviða og ráðið verður í ný störf sem ekki voru til innan félagsins. Skipurit félagsins verður uppfært samhliða breytingum.
„Markmið breytinganna eru fyrst og fremst að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu sinni við dótturfélögin, við viljum gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á sölu og markaðssetningu með tækni, tryggja örugga framkvæmd þróunar- og fjárfestingaverkefna en á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til þess að ná árangri í framtíðinni“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa Lónsins. „Í dag sjáum við á eftir góðu samstarfsfólki sem hefur staðið sig mjög vel og við óskum alls hins besta“ segir hún enn fremur.
Heildarfjöldi stöðugilda hjá samstæðunni lækkar úr 807 í 778 við breytingarnar og eftir þær starfa alls 116 í höfuðstöðvum félagsins, engar breytingar voru gerðar á rekstri dótturfélaga innan samstæðunnar.








