Nýr Mercedes-Benz GLC frumsýndur hjá Öskju í Reykjanesbæ
Nýr og alrafmagnaður Mercedes-Benz GLC verður frumsýndur hjá Öskju í Reykjanesbæ að Njarðarbraut 11 frá kl. 12–16 nk. laugardag 30. maí.
Nýr GLC markar nýjan kafla hjá Mercedes-Benz og sameinar langa drægni, hraðvirka hleðslu og nýja kynslóð tækni í fágaðri og rúmgóðri heild, segir í tilkynningu frá Öskju.
Bíllinn skilar allt að 715 kílómetra drægni samkvæmt WLTP og nýtir nýtt 800 volta hleðslukerfi sem styttir hleðslutíma verulega. Þá býður GLC einnig upp á allt að 2.400 kg dráttargetu sem hentar vel íslenskum aðstæðum.
„Þetta er klárlega einn mest spennandi Mercedes-Benz sem við höfum fengið í langan tíma. Hann er bæði rosalega fallegur, þægilegur og fullur af nýrri tækni og svo er drægnin rosalega góð eða allt að 715 km. Við hlökkum mikið til að sýna bílinn loksins í eigin persónu,“
segir Jón Halldór, sölustjóri Öskju í Reykjanesbæ.
GLC kemur með nýja MB.OS stýrikerfinu frá Mercedes-Benz þar sem gervigreind er nýtt til að gera aksturinn snjallari og persónulegri. Með Digital Extras appinu getur ökumaður meðal annars fylgst með hleðslu, forstillt hitastig í bílnum og nálgast upplýsingar um bílinn í gegnum snjallsíma.
Meðal staðalbúnaðar eru meðal annars:
- MBUX snjallkerfi með raddstýringu
- 360° myndavél
- Íslenskt leiðsögukerfi
- Glerþak með SKY CONTROL
- Rafdrifnar sætastillingar með minni
- Háþróuð aksturs- og öryggiskerfi
Mercedes-Benz fagnar jafnframt 140 árum af nýsköpun á árinu og markar nýr GLC mikilvægt skref í áframhaldandi þróun vörumerkisins.
Forsala á nýjum Mercedes-Benz GLC er hafin hjá Öskju og verð hefst frá 12.390.000 kr.
Gestir eru velkomnir í sýningarsal Öskju í Reykjanesbæ laugardaginn 30. maí frá kl. 12–16 til að skoða bílinn og upplifa nýjan GLC í fyrsta sinn.









